Opið lengur í sund og á skíði fram yfir páska

Það er alltaf gaman í Hlíðarfjalli. Myndin var tekin fyrr í dag og má sjá að það er nægur snjór á sv…
Það er alltaf gaman í Hlíðarfjalli. Myndin var tekin fyrr í dag og má sjá að það er nægur snjór á svæðinu.

Ákveðið hefur verið að lengja afgreiðslutímann í Hlíðarfjalli og Sundlaug Akureyrar í aðdraganda páska enda má segja að nú sé vor í lofti og að páskaveðrið sé komið með frábæru skíðafæri.

Opið verður lengur á föstudögum og laugardögum í Fjallinu og á laugardögum í sundið. Þannig verður þetta fram yfir páska. Nýja stólalyftan, Fjallkonan, verður opnuð á morgun, föstudaginn 17. mars, sem auka mun ánægju og bæta upplifun skíðafólks til mikilla muna. Fjallkonan verður opin föstudaga, laugardaga og sunnudaga. Stefnt er að því að opna útiveitingasölu á svæðinu suðvestan við skíðahótelið til að skapa skemmtilegri stemningu fyrir gesti svæðisins.

Afgreiðslutíminn í Hlíðarfjalli verður sem hér segir næstu helgar og um páska:

Föstudagur 17. mars: kl. 10-19
Laugardagur 18. mars: kl. 9-17

Föstudagur 24. mars: kl. 10-19
Laugardagur 25. mars: kl. 9-17

Föstudagur 31. mars: kl. 10-19
Laugardagur 1. apríl: kl. 9-17

Páskar:
Fimmtudagur 6. apríl: kl. 9-17
Föstudagur 7. apríl: kl. 9-17
Laugardagur 8. apríl: kl. 9-17
Sunnudagur 9. april: kl. 9-17

Föstudagur 14. apríl: kl. 10-19
Laugardagur 15. apríl: kl. 9-17

Í Sundlaug Akureyrar verður afgreiðslutíminn lengdur til kl. 20 næstu laugardaga og um páskana verður opið til kl. 20 frá 6.-8. apríl og aftur laugardaginn 15. apríl.

Loks er þess að geta að í Kjarnaskógi eru skilyrði til að vera á gönguskíðum nú með allra besta móti og nýi troðarinn sér til þess að halda brautunum góðum fyrir gesti svæðisins. Þar er einnig að finna alls kyns aðra afþreyingu og aðstöðu til að grilla á góðviðrisdögum. Hér má skoða kort yfir troðnar slóðir í Kjarnaskógi.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan