Nýtnivikan er að hefjast

Nýtnivikan er að hefjast á Akureyri, en hún stendur yfir 20.-28. nóvember. Nýtnivikan er samevrópskt átak sem er ætlað að vekja fólk til vitundar um nauðsyn þess að draga úr magni úrgangs, minnka sóun, endurvinna og nýta betur.

Þema vikunnar í ár eru hringrásarsamfélög, en þar er vísað til þeirra hvetjandi áhrifa sem samfélög geta haft til þess að auðvelda fólki að innleiða hjá sér umhverfisvænar breytingar.

Nýtnivikan á Akureyri hefur síðustu ár verið haldin með fjölbreyttum atburðum og verður sama uppi á teningnum í ár. Breytingin er sú, líkt og í fyrra, að vegna Covid-19 verður nýtnivikan meira og minna með rafrænum hætti. Íbúar á Akureyri eru hvattir til að taka þátt á sínum forsendum. Til dæmis er upplagt að staldra við og finna nýjar leiðir til að nýta betur og draga úr sóun.

Leyfðu okkur að fylgjast með árangrinum og deildu góðum ráðum með því að senda okkur myndir eða skilaboð í gegnum Facebook-síðu Akureyrarbæjar.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan