Nýr samningur Akureyrarbæjar og Tónræktarinnar

Magni Ásgeirsson, Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri og Ármann Einarsson að lokinni undirritun samni…
Magni Ásgeirsson, Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri og Ármann Einarsson að lokinni undirritun samningsins en Magni og Ármann eru eigendur og skólastjórar Tónræktarinnar.

Í dag var undirritaður nýr samingur Akureyrarbæjar og Tónræktarinnar um styrk vegna tónlistarfræðslu ungs fólks.

Tónlistarnám í Tónræktinni stunda 170 nemendur og þar starfa 11 kennarar. Öll kennsla fer fram í einkatímum og er leiðarljós skólans að kennt sé út frá einstaklingsnámskrá og hverjum og einum nemanda mætt þar sem hann er staddur í aldri og þroska.

Nemendur fá tilsögn og kennslu í þeirri tónlist sem þeir vilja leggja stund á hverju sinni og hefur aðsókn að skólanum verið mjög vaxandi á síðustu árum.

Markmið samningsins við Tónræktina er að veita ungu fólki möguleika á að afla sér tónlistarfræðslu og bjóða upp á annan valkost en Tónlistarskóla bæjarins. Í því skyni leggjur Akureyrarbær 5 milljónir króna árlega í rekstur og starfsemi Tónræktarinnar árin 2023-2025.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan