Konum boðið á Kvenfólk

Leikfélag Akureyrar býður konum á sýninguna Kvenfólk í Samkomuhúsinu á kvennafrídaginn, þann 24. október. Sýningin hefst klukkan 15.00 og er aðgangur ókeypis. Kvenfólk er 323. sviðsetning Leikfélags Akureyrar og hefur fengið frábæra dóma og mikið lof áheyrenda en þetta er nýtt íslenskt sviðsverk eftir Hund í óskilum.

Dúettinn Hund í óskilum skipa þeir Hjörleifur Hjartarsson og Eiríkur Stephensen en þeir eru bæði höfundar og flytjendur verksins. Þeir eru þó ekki alveg einir á báti heldur njóta fulltingis kvennahljómsveitar í sýningunni. Í Kvenfólk fara þeir Hjörleifur og Eiríkur á hundavaði yfir kvennasöguna undir leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Sýningin hefur verið sýnd fyrir fullu húsi frá því hún var frumsýnd þann 29. september.

Í tilefni af Kvennafrídeginum hafa LA og Hundur í óskilum ákveðið að bjóða öllum konum á þessa frábæru sýningu án endurgjalds á meðan húsrúm leyfir.

Ekki er hægt að panta miða á netinu eða í gegnum síma. Til að tryggja sér miða þarf að mæta samdægurs í Samkomuhúsið en miðasalan verður opnuð kl. 13 á kvennafrídaginn.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan