Glæsileg kennsluálma í Lundarskóla tekin í notkun

Umfangsmiklum endurbótum á A-álmu Lundarskóla er að ljúka og var kennsluálman tekin í notkun í byrjun vikunnar.

Eftir miklar framkvæmdir, sem hafa staðið síðastliðið ár, er öll aðstaða nemenda og starfsfólks eins og best verður á kosið. Kominn var tími á endurnýjun, enda eru elstu byggingarnar frá 1974. Þegar rakaskemmdir voru staðfestar í byrjun síðasta árs var ákveðið að flýta framkvæmdum sem höfðu verið áætlaðar 2022.

Verkinu var skipt í tvo áfanga eftir byggingarhlutum og er þeim fyrri að langmestu leyti lokið. Framkvæmdir við B-álmu og tengigang eru hafnar og eru áætluð verklok í júní 2022.

Um er að ræða allsherjarendurnýjun utan- og innanhúss, þ.m.t. á þaki, þakrými og hluta lóðar. Báðar hæðir kennsluálma eru endurnýjaðar, lagður gólfhiti, vatnslagnir og rafmagn endurnýjað og sett ný loftræsting. Markmiðið er að skólahúsnæðið þjóni starfseminni eins og best verður á kosið og uppfylli nútímakröfur með tilliti til hljóðvistar, eldvarna, loftgæða, öryggismála og tæknimála í kennslu. Jarðvegur á milli kennsluálma var tekinn niður í sömu hæð og gólfin á neðri hæð og samhliða því var byggt nýtt anddyri á tengiganginn. Með þessari lækkun jarðvegs var hægt að stækka alla glugga á neðri hæð skólans sem snúa að inngarði á milli álmanna, sem gera rýmin mun opnari og bjartari.

Samhliða endurbótum á húsnæðinu hefur verið ráðist í endurnýjun á húsgögnum og kennslubúnaði í A-álmu. Við val og innkaup á búnaði var horft til þess að mæta áherslum í skólastarfi um fjölbreytta kennsluhætti. Fjölbreytt rými hafa verið hönnuð, m.a. lítil vinnurými sem nemendur og/eða starfsfólk getur notað til að vinna einstaklingslega, í pörum eða teymum. Stefna Lundarskóla er að viðhafa fjölbreytta kennsluhætti og nýta rými á sem fjölbreytilegastan máta fyrir skapandi skólastarf. Á sama tíma þarf að gera ráð fyrir því að nemendur geti unnið í næði og á einstaklingsgrunni. Einnig var sett upp hljóðkerfi sem nýtist við kennslu og stórir fjölnota kennsluskjáir settir upp í stað töflu, skjávarpa og tjalda.

Í vetur mun 1.-6. bekkur vera í nýju álmunni í Lundarskóla og 7.-10. bekkur í Rósenborg. Haustið 2022 mun öll starfsemi færast í Lundarskóla að nýju sem verður þá sem nýr skóli.

Ný kennsluálma var tekin í notkun mánudaginn 23. ágúst. Í tilefni af því var bæjarstjórn, bæjarráði, fræðsluráði og umhverfis- og mannvirkjaráði Akureyrarbæjar boðið að skoða glæsilega aðstöðu og voru þessar myndir teknar við það tilefni:

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan