Nú er í auglýsingu tillaga að breytingu á deiliskipulagi miðbæjarins í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Athugasemdafrestur hefur verið framlengdur til 24. júní 2022.
Um er að ræða breytingu á deiliskipulagsskilmálum fyrir lóðina Geislagötu 5.
Breytingin felur í sér að byggingarreitur Geislagötu 5 mun stækka lítillega og byggt verður ofan á núverandi byggingu þannig að hún verður þar með fimm hæðir með efstu hæðina inndregna á þrjá vegu. Gert er ráð fyrir verslun- og þjónustu á jarðhæð og allt að 12 íbúðum á hæðum 2-5.
Skipulagstillöguna má nálgast hér.
Tillagan verður jafnframt aðgengileg hjá þjónustu- og skipulagssviði í Ráðhúsi Akureyrarbæjar. Hægt er að skila inn ábendingum um tillöguna á netfangið skipulag@akureyri.is eða bréfleiðis til Þjónustu- og skipulagssviðs, Ráðhúsi, Geislagötu 9, 600 Akureyri, til 24. júní 2022.
Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn þeirra sem senda inn athugasemdir koma fram í fundargerðum skipulagsráðs sem birtar eru á heimasíðu Akureyrarbæjar. Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum við skipulag, s.s. kennitala, nafn og netfang eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Akureyrarbæ hér.