Fundur í bæjarstjórn 5. desember

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar þriðjudaginn 5. desember næstkomandi kl. 16.

Fundurinn verður haldinn í fundarsal á 1. hæð í Ráðhúsinu, Geislagötu 9, og er öllum opinn. Á dagskrá fundarins er meðal annars seinni umræða um fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2024-2027, gjaldskrár bæjarins og álagning gjalda 2024. 

Hér er hægt að skoða dagskrá fundarins.

Fundurinn verður tekinn upp og gerður aðgengilegur hér á heimasíðunni að honum loknum. Hér má finna upptökur frá bæjarstjórnarfundum.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan