Endurnýjun rekstrar- og þjónustusamninga við fjögur íþróttafélög

Að undirritun lokinni. Frá vinstri: Nói Björnsson formaður Þórs, Bjarni Þórhallsson formaður Golfklú…
Að undirritun lokinni. Frá vinstri: Nói Björnsson formaður Þórs, Bjarni Þórhallsson formaður Golfklúbbs Akureyrar, Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála hjá Akureyrarbæ, Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri, Dagbjartur Halldórsson formaður Hestamannafélagsins Léttis og Sævar Pétursson framkvæmdastjóri Knattspyrnufélags Akureyrar.

Í dag voru endurnýjaðir til fimm ára rekstrar- og þjónustusamningar milli Akureyrarbæjar og fjögurra aðildarfélaga ÍBA.

Rekstrarsamningarnir snúa að framlagi Akureyrarbæjar og hlutverki íþróttafélaganna sem sjá um rekstur og starfsmannahald íþróttamannvirkja sem Akureyrarbær á að hluta eða að fullu.

Þjónustusamningarnir varða faglegt starf íþróttafélaganna og reiknast framlag Akureyrarbæjar til félaganna út frá iðkendafjölda hvers félags.

Aðildarfélög ÍBA sem endurnýjuðu samninga við Akureyrarbæ í dag voru Íþróttafélagið Þór, Hestamannafélagið Léttir, Golfklúbbur Akureyrar og Knattspyrnufélag Akureyrar.

Rekstrarsamningur Akureyrarbæjar og Íþróttafélagsins Þórs
Þjónustusamningur Akureyrarbæjar og Íþróttafélagsins Þórs

Rekstrarsamningur Akureyrarbæjar og Knattspyrnufélags Akureyrar
Þjónustusamningur Akureyrarbæjar og Knattspyrnufélags Akureyrar

Rekstrarsamningur Akureyrarbæjar og Golfklúbbs Akureyrar
Þjónustusamningur Akureyrarbæjar og Golfklúbbs Akureyrar

Rekstrarsamningur Akureyrarbæjar og Hestamannafélagsins Léttis
Þjónustusamningur Akureyrarbæjar og Hestamannafélagsins Léttis

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan