Breyttur afgreiðslutími á jarðvegslosunarsvæðinu

Vetrarafgreiðslutími á jarðvegslosunarsvæðinu að Jaðri hefur nú tekið gildi. Opið er á svæðinu samkvæmt samkomulagi og þarf að hafa samband í síma 620-6020 ef óskað er eftir því að losa. 

Svæðið er ætlað fyrir meiriháttar losun sem er í flestum tilvikum frá atvinnustarfsemi, en minniháttar losun frá heimilum á Akureyri fer fram á gámasvæðinu við Réttarhvamm þar sem áfram er notast við klippikortin góðu. 

Nánari upplýsingar um jarðvegslosunarsvæðið:

Nýtt fyrirkomulag á jarðvegslosunarsvæðinu að Jaðri tók gildi þann 1. ágúst síðastliðinn. Þá var aðeins heimilt að nota svæðið innan opnunartíma og verður innheimt gjald fyrir losun.

Vetraropnun 16. október – 31. mars
Samkvæmt samkomulagi (Sími: 620-6020)

Sumaropnun 1. apríl – 15. október
Virka daga 8:00 -12:00 og 12:45-18:30
Helgar 10:00 -16:00 (1.maí - 31.ágúst)

Heimilt er að losa á tveimur skilgreindum svæðum. Annars vegar er merkt svæði fyrir jarðveg úr gatna- og húsagerð, hrossaskít, gras, greinar og annan gróður og hins vegar svæði fyrir trjáboli án greina.

Akureyrarbær og Golfklúbbur Akureyrar hafa sett umgengnisreglur fyrir svæðið sem mikilvægt er að notendur kynni sér:

• Svæðið er ætlað fyrir losun Akureyrarbæjar, verktaka og gámafyrirtækja á Akureyri.
• Einungis er heimilt að losa á skilgreindum svæðum innan opnunartíma.
• Sé losað fyrir utan merkt losunarsvæði hefur Akureyrarbær heimild til að láta færa efnið og/eða slétta úr því á kostnað viðkomandi aðila.
• Einungis skal losa þann úrgang sem heimilt er að losa á svæðinu. Öðrum úrgangi sem er losaður hér verður komið í viðeigandi farveg á kostnað losunaraðila.
• Öll minni losun skal fara fram á gámasvæðinu við Réttarhvamm

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan