Afgreiðslutímar og þjónusta um hátíðarnar

Afgreiðslutímar og þjónusta sveitarfélagsins tekur að venju breytingum um jól og áramót. Hér að neðan eru helstu upplýsingar.

Ráðhúsið, Geislagötu 9, verður opið virka daga kl. 9-15 en lokað verður á aðfangadag og gamlársdag. Sama gildir um velferðarsvið og fræðslusvið í Glerárgötu 26. 

Þjónusta Strætisvagna Akureyrar og ferliþjónusta verður hefðbundin á virkum dögum í kringum jól og áramót. Ekið verður samkvæmt áætlun til kl. 12 á aðfangadag og gamlársdag. Enginn akstur verður á jóladag og nýársdag. Helgarakstur strætisvagna verður á annan í jólum og 2. janúar. 

 

Sundlaugar

  Sundlaug Akureyrar Glerárlaug Sundlaugin í Hrísey
23. desember 6:45 - 18:00 6:45 - 13:00 LOKAÐ
24. desember 6:45 - 12:00 6:45 - 11:00 LOKAÐ
25. desember LOKAÐ LOKAÐ LOKAÐ
26. desember 11:00 - 19:00 LOKAРLOKAР
27.-30. desember 6:45 - 21:00 6:45 - 21:00 Lokað 27. des. Opið 28.-30. des kl. 15:00 - 19:00.
31. desember 6:45 - 12:00 6:45 - 11:00 LOKAÐ
1. janúar LOKAÐ LOKAÐ LOKAÐ. Opið 2. jan kl. 13:00 - 16:00

Amtsbókasafnið verður opið eins og venjulega 23. desember og virka daga á mill jóla og nýárs. Hér er yfirlit afgreiðslutíma Amtsbókasafnsins um jól og áramót. 

Listasafnið á Akureyri verður opið 23. desember kl. 12-21. Lokað verður 24., 25., 31. des og 1. janúar. Aðra daga er opið kl. 12:00-17:00. 

Hér eru upplýsingar um afgreiðslutíma gámasvæðisins Réttarhvammi. 

Með því að smella hér getur þú nálgast upplýsingar um afgreiðslutíma og þjónustu ýmissa fyrirtækja og stofnana á Akureyri sem bjóða upp á afþreyingu, veitingar og verslun

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan