Áður en ég dey

Fimmtudaginn 13. júní kl. 17 verður afhjúpaður svokallaður "Áður en ég dey veggur" á Amtsbókasafninu á Akureyri.

Um er að ræða fallegan vettvang þar sem fólki gefst færi á að horfa yfir farinn veg, líta til framtíðar og deila framtíðardraumum, óskum og löngunum í opinberu rými. Veggurinn er áminning um að við erum ekki ein, hvatning um mikilvægi þess að eiga sér draum og gera það besta úr lífinu, óháð stétt og stöðu. Það er almenningur sem skapar listaverkið sem til verður.

Á fimmtudaginn kl. 17 skrifar Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri skrifa fyrstu línuna á vegginn og síðan leiða Ómur Yoga & Gongsetur hugleiðslu þar sem lífinu verður fagnað, utandyra fyrir framan safnið ef veður leyfir.

Veggurinn er hluti af alþjóðlega listaverkinu "Before I Die" sem Candy Chang er höfundur að og hóf með því að setja verkið upp á yfirgefið hús í New Orleans í Bandaríkjunum árið 2011. Síðan þá hafa að minnsta kosti 1.000 hliðstæðir veggir verið settir upp í fjölmörgum borgum og bæjum í hátt í 100 löndum um heim allan á um 35 tungumálum.

Hægt er að njóta listaverksins á ýmsan hátt, með því að skrifa á vegginn, með því að lesa það sem aðrir hafa skrifað, með því að mynda vegginn og mannlífið sem myndast í kringum hann og með því að taka þátt í samræðum sem myndast í tengslum við það sem skrifað er á vegginn. Þar sem veggurinn er í opinberu rými geta allir sem leið eiga um tekið þátt í sköpun hans, hvort sem er með því að deila draumum sínum með öðrum eða skrá hugsanir sínar án þess að vitni séu að því. Listaverkið vekur fólk til umhugsunar um tilveruna, um stöðu sína, um eigin getu og vilja til að vera þátttakandi í lífinu.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan