Norðurgata 3-7. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi suðurhluta Oddeyrar

Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir tillögu að breytingu á deiliskipulagi suðurhluta Oddeyrar skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagssvæðið afmarkast af lóðum 3, 5 og 7 við Norðurgötu. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að lóðirnar verði sameinaðar í eina lóð þar sem heimilt verður að reisa tvö fjórbýlishús á tveimur hæðum auk riss. Núverandi bygging undir spennistöð á lóðinni mun standa áfram og verða nýtt sem geymsla fyrir íbúa fjórbýlishúsanna.

Skipulagstillöguna má nálgast HÉR. Tillagan er auk þess aðgengileg í Ráðhúsi Akureyrarbæjar og á Skipulagsgátt.

Hægt er að skila inn ábendingum um skipulagstillöguna á netfangið skipulag@akureyri.is, í gegnum Skipulagsgátt eða bréfleiðis þjónustu- og skipulagssviðs í Ráðhúsi, Geislagötu 9, 600 Akureyri, til 27.desember 2023.

Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn þeirra sem senda inn athugasemdir koma fram í fundargerðum skipulagsráðs sem birtar eru á heimasíðu Akureyrarbæjar. Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum við skipulag, s.s. kennitala, nafn og netfang eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Akureyrarbæ.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan