Deiliskipulagsuppdráttur fyrir og eftir
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kynnir hér með skv. 4.mgr. 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu á vinnslustigi að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðirnar Austurvegur 15-21, Hrísey.
Skipulagstillagan gerir ráð fyrir að breytingar verði gerðar á 4 lóðum við Austurveg 15-21. Breytingarnar eru eftirfarandi.
- Einbýlishúsalóðinni nr. 15 við Austurveg er breytt þannig að heimilt er að byggja parhús eða fjórbýlishús á tveimur hæðum. Hámarksbyggingarheimild fer úr 120 m2 uppí 360 m2. Lóðin stækkar um 52 m2 og fer úr 1268 m2 upp í 1320 m2.
- Einbýlishúsalóðinni nr. 17 við Austurveg er breytt þannig að heimilt er að byggja parhús eða fjórbýlishús á tveimur hæðum. Hámarksbyggingarheimild fer úr 180 m2 uppí 360 m2. Lóðin stækkar um 94 m2 og fer úr 1268 m2 upp í 1362 m2.
- Á einbýlishúsalóðinni nr. 19 við Austurveg er heimilt að byggja hús á tveimur hæðum. Hámarksbyggingarheimild fer úr 180 m2 uppí 300 m2. Lóðin minnkar um 94m2 og fer úr 1268 m2 niður í 1174 m2.
- Á einbýlishúsalóðinni nr. 21 við Austurveg er heimilt að byggja hús á tveimur hæðum. Hámarksbyggingarheimild fer úr 180 m2 uppí 300 m2. Lóðin minnkar um 94m2 og fer úr 1268 m2 niður í 1174 m2.
Tillöguuppdrætti má nálgast hjá þjónustu- og skipulagssviði í Ráðhúsi Akureyrar frá 16. janúar - 1. febrúar 2024 og á heimasíðu bæjarins á sama tíma: www.akureyri.is – neðst á forsíðu undir: Auglýstar skipulagstillögur.
Ábendingum þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram má skila með tölvupósti á netfangið skipulag@akureyri.is eða bréfleiðis til þjónustu- og skipulagssviðs í Ráðhúsi Akureyrar, Geislagötu 9, 600 Akureyri.
Tillaga að breyting á deiliskipulagi Austurvegar, Eyjabyggðar og Búðartanga, Hrísey - Austurvegur 15 - 21 (pdf).
Frestur til að koma á framfæri ábendingum við tillöguna er til 1. febrúar 2024.
16. janúar 2024
Skipulagsfulltrúi