Velferðarráð

1325. fundur 16. september 2020 kl. 14:00 - 16:29 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Heimir Haraldsson formaður
  • Róbert Freyr Jónsson
  • Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
  • Hermann Ingi Arason
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Sigríður Inga Pétursdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri öa
  • Karólína Gunnarsdóttir sviðsstjóri búsetusviðs
  • Kristbjörg Björnsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristbjörg Björnsdóttir fundarritari
Dagskrá
Sigríður Inga Pétursdóttir M-lista sat fundinn í forföllum Sigrúnar Elvu Briem.

1.Mannréttindastefna 2020-2023

Málsnúmer 2019030417Vakta málsnúmer

Bryndís Elfa Valdemarsdóttir skrifstofustjóri og jafnréttisráðgjafi kynnti mannréttindastefnu Akureyrarbæjar.
Velferðarráð þakkar Bryndísi fyrir kynningu á mannréttindastefnu Akureyrarbæjar.

2.Lengd viðvera fyrir fötluð börn

Málsnúmer 2020090333Vakta málsnúmer

Lagt fram til umræðu minnisblað dagsett 25. ágúst 2020 frá Önnu Marit Níelsdóttur, Fanneyju Jónsdóttur og Þórhildi G. Kristjánsdóttur um lengda viðveru fyrir fötluð börn.

Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður í félagsþjónustu og Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs sátu fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð vísar erindinu til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2021.

3.Sérstakur húsnæðisstuðningur 2020

Málsnúmer 2020090332Vakta málsnúmer

Magnús Valur Axelsson og Pálína Ásbjörnsdóttir húsnæðisfulltrúar kynntu minnisblað vegna sérstaks húsnæðisstuðnings dagsettu 14. september 2020.
Velferðarráð felur húsnæðisfulltrúum og sviðsstjóra að vinna málið áfram.

4.Viðauki búsetusviðs vegna ársins 2020

Málsnúmer 2020090414Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun. Lagt er til að hækka fjárhagsáætlun notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar og þjónustukjarnans við Klettaborg. Að auki er lagt til að tekjuauki verði gerður vegna þjónustukjarnans í Hafnarstræti 28-30.

Kolbeinn Aðalsteinsson skrifstofustjóri búsetusviðs sat fundinn undir þessum lið.

5.Velferðarráð - fjárhagsáætlun 2021

Málsnúmer 2020090016Vakta málsnúmer

Framvinda við gerð fjárhagsáætlana búsetu- og fjölskyldusviðs kynnt.

Kolbeinn Aðalsteinsson skrifstofustjóri búsetusviðs sat fundinn undir þessum lið.
Sigríður Inga Pétursdóttir M-lista yfirgaf fundinn kl. 16:07.

6.Starfsáætlun velferðarráðs 2021

Málsnúmer 2020090386Vakta málsnúmer

Starfsáætlanir búsetu- og fjölskyldusviðs lagðar fram til samþykktar.
Velferðarráð samþykkir framlagðar starfsáætlanir.

7.Öldrunarþjónusta - biðlistar

Málsnúmer 2016020149Vakta málsnúmer

Halldór S. Guðmundsson framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar kynnti yfirlit yfir fjölda einstaklinga sem metnir eru af færni- og heilsumatsnefnd í þörf fyrir dvalar- og hjúkrunarrými þann 1. september sl. ásamt upplýsingum um fjölda umsækjenda á biðlista eftir dagþjálfun.

Fundi slitið - kl. 16:29.