Umhverfisnefnd

53. fundur 25. nóvember 2010 kl. 16:15 - 17:40 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Sigmar Arnarsson formaður
  • Hulda Stefánsdóttir
  • Kolbrún Sigurgeirsdóttir
  • Petrea Ósk Sigurðardóttir
  • Valdís Anna Jónsdóttir
Starfsmenn
  • Helgi Már Pálsson
  • Jón Birgir Gunnlaugsson fundarritari
Dagskrá

1.Norrænt orkusveitarfélag 2011

Málsnúmer 2010100154Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi dags. 25. október 2010 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga f.h. Norrænu ráðherranefndarinnar þar sem sveitarfélögum á Norðurlöndum er boðið til samkeppni um titilinn Norrænt orkusveitarfélag 2011.
Erindinu var vísað til umhverfisnefndar frá bæjarráði 4. nóvember 2010.
Jakob Björnsson frá Orkustofnun mætti á fundinn undir þessum lið.

Umhverfisnefnd þakkar Jakobi Björnsyni fyrir góða kynningu á samkeppni um Norrænt orkusveitarfélag 2011.

Umhverfisnefnd felur starfsmönnum að vinna að umsókn í samvinnu við Orkusetur um þátttöku í verkefninu og kynna drög á næsta fundi.

2.Endurvinnanlegt hráefni úr grenndargámum - tilboð

Málsnúmer 2010100106Vakta málsnúmer

Birgir Á. Kristjánsson, Auðun Pálsson og Jörgen Þ. Þráinsson fulltrúar frá Íslenska gámafélaginu mættu á fundinn og kynntu hvað félagið vill bjóða Akureyrarkaupstað í endurvinnanlegt hráefni úr grenndargámum.

Umhverfisnefnd þakkar þeim félögum fyrir tilboðið sem lagt var fram á fundinum. Stefnt er að ákvörðunum á næsta fundi nefndarinnar í desember nk.

3.Samkeppniseftirlit - sampil samkeppnisstefnu og umhverfisstefnu - skýrsla

Málsnúmer 2010110061Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar ný skýrsla norrænu samkeppniseftirlitanna um samspil samkeppnisstefnu og umhverfisstefnu, Competition policy and Green Growth.

4.Sorphirða í Akureyrarkaupstað - móttaka og flutningur úrgangs

Málsnúmer 2010090154Vakta málsnúmer

Kynntar niðurstöður útboðs sem opnað var föstudaginn 12. nóvember sl.

Umhverfisnefnd samþykkir tilboð Gámaþjónustu Norðurlands ehf sem lægstbjóðanda í verkið

Fundi slitið - kl. 17:40.