Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

254. fundur 05. desember 2014 kl. 08:15 - 09:25 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Dagur Fannar Dagsson formaður
  • Eiríkur Jónsson
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Þorsteinn Hlynur Jónsson
  • Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Óskar Gísli Sveinsson verkefnastjóri viðhalds
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Dagskrá
Eiríkur Jónsson S-lista mætti í forföllum Helenu Þuríðar Karlsdóttur.
Njáll Trausti Friðbertsson D-lista mætti á fundinn kl. 08:30.

1.Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra - tilnefning fulltrúa kjörtímabilið 2014-2018

Málsnúmer 2014090020Vakta málsnúmer

Tilnefning fulltrúa stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar í samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra kjörtímabilið 2014-2018.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar tilnefnir eftirtalda aðila sem fulltrúa sína í nefndinni:

aðalmaður Ingibjörg Ólöf Ísaksen B-lista og varamaður Njáll Trausti Friðbertsson D-lista.

2.Þórunnarstræti 99 - aðstaða fyrir Skátafélagið Klakk í kjallara

Málsnúmer 2014080046Vakta málsnúmer

Lagður fram til samþykktar húsaleigusamningur við Skátafélagið Klakk dagsettur 1. desember 2014 um aðstöðu fyrir félagið í kjallara Þórunnarstrætis 99.

Afgreiðslu frestað.

3.Skjaldarvík - húsaleigusamningur við Concept ehf

Málsnúmer 2004010122Vakta málsnúmer

Lagður fram viðauki dagsettur 5. desember 2014 við húsaleigusamning sem dagsettur er 26. janúar 2010.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

Fundi slitið - kl. 09:25.