Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

207. fundur 27. apríl 2012 kl. 08:15 - 09:25 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Helgi Snæbjarnarson
  • Hjörleifur Hallgríms Herbertsson
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Bjarni Sigurðsson áheyrnarfulltrúi
  • Guðný Hrund Karlsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Sóley Björk Stefánsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir
  • Óskar Gísli Sveinsson
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Sundlaugar Akureyrarbæjar - framtíðarsýn

Málsnúmer 2012030245Vakta málsnúmer

Tekin fyrir tilvísun frá íþróttaráði dags. 22. mars 2012 um að stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar tilnefni sinn fulltrúa í vinnuhóp um mótun framtíðarsýnar fyrir sundlaugar bæjarins.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar tilnefnir Sigríði Maríu Hammer L-lista sem sinn fulltrúa í vinnuhópinn.

2.Amtsbókasafn - glerskipti austurhlið

Málsnúmer 2012040121Vakta málsnúmer

Farið yfir eftirfarandi tilboð sem bárust í gluggaskiptin:
ÁK smíði ehf - kr. 10.568.709 - 151%
Trésmiðja Kristjáns Jónassonar ehf - kr. 8.362.050 - 119%
Bjálkinn og flísin ehf - kr. 7.817.160 - 112%
Kostnaðaráætlun: kr. 7.000.000 - 100%

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Bjálkann og flísina ehf.

3.Efniskaup FA 2012-2013

Málsnúmer 2012040031Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar niðurstöður verðkönnunar vegna innkaupa á efni.

4.Miðbraut 11 Hrísey - sala eignar

Málsnúmer 2012040123Vakta málsnúmer

Lagt fram kauptilboð dags. 23. apríl 2012 sem barst í eignina.

Meirihluti stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir söluna.

Sigfús Karlsson B-lista sat hjá við afgreiðslu þessa máls.

5.Miðbraut 7 Hrísey - sala eignar

Málsnúmer 2012040144Vakta málsnúmer

Tekið fyrir tilboð dags. 25. apríl 2012 í eignina.

Meirihluti stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir söluna.

Sigfús Karlsson B-lista sat hjá við afgreiðslu þessa máls.

6.Hjúkrunarheimili Vestursíðu 9

Málsnúmer 2011080097Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar stöðuskýrsla 8 fyrir framkvæmdina.

7.Lystigarður - kaffihús og minjagripasala

Málsnúmer 2010110084Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar stöðuskýrsla 2 fyrir framkvæmdina.
Njáll Trausti Friðbertsson D-lista vék af fundi undir þessum lið.

8.Naustaskóli II. áfangi - nýbygging

Málsnúmer 2010090010Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar niðurstaða verðkönnunar vegna innkaupa á skólahúsgögnum.

9.Verkfundargerðir FA 2012

Málsnúmer 2012010240Vakta málsnúmer

Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:
Hjúkrunarheimili Vestursíðu 9 - SS Byggir ehf: 20. verkfundur dags. 12. apríl 2012.
Þrastarlundur 3-5 - Virkni ehf: 11. verkfundur dags. 17. apríl 2012.
Naustaskóli 2. áfangi - SS Byggir ehf: 20. verkfundur dags. 12. apríl 2012.
Lystigarður kaffihús - BB Byggingar ehf: 7. og 8. verkfundur dags. 17. og 24. apríl 2012.

Fundi slitið - kl. 09:25.