Stjórn Akureyrarstofu

188. fundur 21. maí 2015 kl. 16:15 - 18:00 Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
Nefndarmenn
  • Logi Már Einarsson formaður
  • Sigfús Arnar Karlsson varaformaður
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Sædís Gunnarsdóttir
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Hildur Friðriksdóttir
  • Eva Dögg Fjölnisdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Skúli Gautason framkvæmdastjóri Akureyrarstofu ritaði fundargerð
Dagskrá

1.Akureyrarvaka 2015

Málsnúmer 2015010036Vakta málsnúmer

Jón Gunnar Þórðarson verkefnisstjóri Akureyrarvöku kom á fundinn og kynnti hugmyndir um dagskrá og þema hátíðarinnar.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar Jóni Gunnari fyrir komuna.

2.Saga Akureyrar

Málsnúmer 2015050137Vakta málsnúmer

Greint frá stöðu mála varðandi lagerstöðu og sölu á Sögu Akureyrar.

3.Starfsáætlun stjórnar Akureyrarstofu 2015-2018

Málsnúmer 2015030239Vakta málsnúmer

Unnið að starfsáætlun stjórnar Akureyrarstofu fyrir árin 2015-2018.
Starfsáætlun skal unnin áfram á næsta fundi.
Logi Már Einarsson S-lista vék af fundi kl. 16:50 og Sigfús Arnar Karlsson B-lista tók við fundarstjórn.
Sædís Gunnarsdóttir S-lista tók sæti á fundinum í stað Loga Más Einarssonar.

Fundi slitið - kl. 18:00.