Stjórn Akureyrarstofu

218. fundur 03. nóvember 2016 kl. 16:15 - 18:22 Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
Nefndarmenn
  • Unnar Jónsson formaður
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Hildur Friðriksdóttir
  • Eva Dögg Fjölnisdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórgnýr Dýrfjörð framkvæmdastjóri Akureyrarstofu ritaði fundargerð
Dagskrá

1.Menningarfélag Akureyrar - MAK

Málsnúmer 2016030110Vakta málsnúmer

Þuríður Helga Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri félagsins og Sigurður Kristinsson komu á fundinn til að fara yfir stöðu rekstrar og verkefna í kjölfar aðalfundar félagsins.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar Sigurði og Þuríði fyrir greinargóðar upplýsingar og gagnlegar umræður.

2.Ferðamálastefna

Málsnúmer 2014110220Vakta málsnúmer

Áfram haldið vinnu við ferðamálastefnuna.

3.Umsókn um styrk til kaupa á tímatökubúnaði

Málsnúmer 2016070084Vakta málsnúmer

Styrkbeiðni frá Vilberg Helgasyni, f.h. Hjólreiðafélags Akureyrar, þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 600.000 til kaupa á sjálfvirkum tímatökubúnaði sem myndi gagnast ýmsum viðburðum á Akureyri.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir styrk að upphæð kr. 600.000 til verkefnisins.

4.Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030

Málsnúmer 2015110092Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd samþykkti á fundi 5. október sl. að senda tillögu að Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 til umsagnar innan bæjarkerfisins, þ.e. deilda, nefnda og ráða.

Lagt fram til kynningar.

5.Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2016

Málsnúmer 2016110027Vakta málsnúmer

Í vikunni bárust þau tíðindi að Akureyringurinn Arnar Már Arngrímsson hefur hlotið barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir skáldsögu sína Sölvasögu unglings. Þetta er í fjórða sinn sem verðlaun eru veitt í þessum flokki en þau koma nú í fyrsta skipti í hlut Íslendings.
Stjórn Akureyrarstofu óskar Arnari Má hjartanlega til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu og óskar honum áframhaldandi velfarnaðar á rithöfundarbrautinni.

Fundi slitið - kl. 18:22.