Skólanefnd

14. fundur 19. september 2016 kl. 13:30 - 15:45 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Logi Már Einarsson formaður
  • Dagný Þóra Baldursdóttir
  • Siguróli Magni Sigurðsson
  • Hanna Dögg Maronsdóttir
  • Preben Jón Pétursson
Starfsmenn
  • Soffía Vagnsdóttir fræðslustjóri ritaði fundargerð
  • Hrafnhildur G Sigurðardóttir leikskólafulltrúi
  • Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri
Dagskrá
Sigurður Freyr Sigurðarson fulltrúi grunnskólakennara boðaði forföll. Ekki náðist í varamann í hans stað.
Vilborg Hreinsdóttir fulltrúi leikskólakennara boðaði forföll.
Anna María Hjálmarsdóttir áheyrnarfulltrúi V-lista var fjarverandi. Ekki kom varamaður í hennar stað.

1.Hvað virkar í forvörnum (og hvað ekki)?

Málsnúmer 2016090102Vakta málsnúmer

Dr. Ársæll Már Arnarsson prófessor í sálarfræði við Háskólann á Akureyri kynnti niðurstöður rannsókna um forvarnir.

Skólanefnd þakkar Ársæli fyrir greinargott erindi.

2.Beiðni um umsögn á skipulagslýsingu vegna aðalskipulagsbreytingar í Hlíðahverfi á Akureyri

Málsnúmer 2016090116Vakta málsnúmer

Lagt fram til umsagnar.
Skólanefnd fagnar áformum um uppbyggingu íbúðabyggðar í Glerárhverfi en minnir jafnframt á mikilvægi þess að hugað sé samhliða að uppbyggingu leikskóla í hverfinu á næstu árum.

Þá hvetur skólanefnd til þess að skipulagsnefnd hafi náið samráð við skólanefnd við útfærslu lóðarmarka til austurs, þannig að ekki skerðist framtíðarmöguleikar Glerárskóla á því að vaxa og dafna.

3.Fjárhagsáætlun fræðslumála 2017

Málsnúmer 2016080015Vakta málsnúmer

Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri á skóladeild fór yfir vinnugögn vegna fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017.

Fundi slitið - kl. 15:45.