Skipulagsnefnd

230. fundur 04. maí 2016 kl. 08:00 - 10:00 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Tryggvi Már Ingvarsson formaður
  • Ólína Freysteinsdóttir
  • Sigurjón Jóhannesson
  • Vilberg Helgason
  • Jón Þorvaldur Heiðarsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Bjarki Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Anna Bragadóttir fundarritari
Dagskrá
Vilberg Helgason V-lista mætti í forföllum Edwards Hákonar Huijbens.
Helgi Snæbjarnarson L-lista mætti ekki á fundinn.

1.Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030

Málsnúmer 2015110092Vakta málsnúmer

Kafli 2: Farið yfir almenn ákvæði fyrir landnotkunarflokka. Farið yfir almenn ákvæði og sérákvæði fyrir íbúðarsvæði. Taka þarf afstöðu til hvort setja eigi ákvæði um heimagistingu og þá á hvaða svæðum. Lagt til að lítil opin svæði sem ekki hafa neina sérstaka notkun verði felld inn í íbúðarsvæði og leiksvæði verði merkt með L, en ekki sem sérstök svæði.

Farið yfir miðsvæði, m.a. hversu ítarleg umfjöllunin á að vera.

Farið yfir ákvæði landnotkunarflokka verslun- og þjónustu og samfélagsþjónustu.

Farið yfir ákvæði landnotkunarflokka athafnasvæði, iðnaðarsvæði og hafnarsvæði.

Farið yfir ákvæði landnotkunarflokka íþróttasvæði.

Rætt um stöðu Hríseyjar og Grímseyjar í aðalskipulaginu. Á að taka umfjöllun inn í almennan texta eða hafa sérstaka ítarlega kafla um hvora eyna? Á að taka markmið um eyjarnar inn í almenn markmið eða hafa þau ítarleg sem sér markmið í köflunum um þær?

Kafli 3 Forsendur: Farið yfir kafla 4 Mannfjöldaþróun.

Umræður. Frestað.

Fundi slitið - kl. 10:00.