Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra

1. fundur 02. mars 2015 kl. 13:00 - 14:18 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Jón Heiðar Jónsson formaður
  • Tryggvi Már Ingvarsson
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Jón Heiðar Daðason
Starfsmenn
  • Leifur Þorsteinsson fundarritari
Dagskrá
Njáll Trausti Friðbertsson fulltrúi stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar mætti í forföllum Ingibjargar Ólafar Isaksen.
Lilja Guðmundsdóttir fulltrúi Þroskahjálpar mætti ekki á fundinn og varamaður mætti ekki í hennar stað.

1.Aðgengi að bílastæðum fyrir fatlaða við Skipagötu

Málsnúmer 2012121158Vakta málsnúmer

Rætt um bílastæði fyrir fatlaða sem staðsett eru á bílastæðareitnum við Skipagötu. Þau séu of mjó til að henta fötluðum auk þess sem mörg þeirra eru illa staðsett og ekki í hæð við gönguleiðir. Leifur Þorsteinsson kynnti deiliskipulagsuppdrátt af miðbænum.
Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra óskar eftir við framkvæmdadeild að úrbætur verði gerðar á bílastæðum fyrir hreyfihamlaða í miðbænum í samráði við formann nefndarinnar.
Einnig óskar nefndin eftir samráði við framkvæmdadeild við endurbætur og framkvæmdir á götum og bílastæðum á miðbæjarsvæðinu samkvæmt nýju deiliskipulagi.

2.Upplýsingavefur um aðgengi

Málsnúmer 2015020135Vakta málsnúmer

Formaður nefndarinnar kynnti vefsíðuna "gottadgengi.is" sem er upplýsingavefur um aðgengi.

3.Umferðarljós - hljóðljós

Málsnúmer 2012060053Vakta málsnúmer

Á fundi sínum 10. september 2012 beindi samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra þeirri ósk til framkvæmdadeildar að umferðar- og gangbrautarljósum með hljóðmerkjum verði fjölgað í bænum.
Lagt var fram yfirlit frá framkvæmdadeild um hvað gert hefur verið í þeim málum.
Óskað er eftir frekari upplýsingum um stöðu mála, kostnað o.fl. frá framkvæmdadeild og óskað er eftir að fulltrúi framkvæmdadeildar komi á næsta fund nefndarinnar.
Málinu frestað.

Fundi slitið - kl. 14:18.