Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra

1. fundur 03. október 2017 kl. 14:00 - 15:15 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Jón Heiðar Jónsson formaður
  • Jón Heiðar Daðason
  • Lilja Guðmundsdóttir
  • Tryggvi Már Ingvarsson
Starfsmenn
  • Leifur Þorsteinsson fundarritari
Fundargerð ritaði: Leifur Kristján Þorsteinsson
Dagskrá
Ingibjörg Ólöf Isaksen boðaði forföll.

1.Gleráreyrar 1 - rými 13, veitingastaður

Málsnúmer 2017070059Vakta málsnúmer

Lagðar voru fyrir nefndina til skoðunar teikningar af fyrirhuguðum nýjum veitingastað á Glerártorgi, Gleráreyrum 1.
Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra gerir eftirtaldar athugasemdir:

Gera skal ráð fyrir a.m.k.150 cm rými framan við afgreiðsluborð og afgreiðslu drykkja. Tryggja skal umferðarleiðir a.m.k. 130 cm. Ekki er ásættanlegt að ekki sé hjólastólaaðgengi að efri hæð. Æskilegt væri að gert sé ráð fyrir snyrtingu færri hjólastólum á efri hæð. Gera þarf ráð fyrir nægu svæði við útgönguleiðir og öruggu svæði við flóttaleið.

2.Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030

Málsnúmer 2015110092Vakta málsnúmer

Bjarki Jóhannesson sviðstjóri skipulagssviðs kom á fundinn og kynnti tillögu að aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030.
Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra þakkar Bjarka fyrir kynninguna.

Fundi slitið - kl. 15:15.