Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

4. fundur 19. september 2023 kl. 16:00 - 18:00 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Guðrún Karitas Garðarsdóttir formaður
  • Þórhallur Harðarson
  • Halla Birgisdóttir Ottesen
  • Sif Sigurðardóttir fulltrúi þroskahjálpar ne
  • Lilja Björg Jónsdóttir fulltrúi grófarinnar
  • Elmar Logi Heiðarsson fulltrúi sjálfsbjargar
Starfsmenn
  • Karólína Gunnarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri
Dagskrá

1.Reglur um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra

Málsnúmer 2023090450Vakta málsnúmer

Velferðarráð vísar til samráðshópsins nýjum reglum um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra til umsagnar.
Samráðshópurinn lýsir yfir ánægju sinni með reglurnar og telur þær til bóta fyrir foreldra/forráðamenn.

2.Reglur um stuðningsfjölskyldur

Málsnúmer 2023090452Vakta málsnúmer

Velferðarráð vísar nýjum reglum um stuðningsfjölskyldur til samráðshópsins til umsagnar.
Samráðshópurinn lýsir yfir ánægju sinni með reglurnar.

3.Reglur um skammtímadvöl og frístundaþjónustu

Málsnúmer 2023090449Vakta málsnúmer

Velferðarráð vísar nýjum reglum til samráðshópsins um skamtímadvöl og frístundaþjónustu til umsagnar.
Samráðshópurinn lýsir yfir ánægju sinni með reglurnar.

4.Reglur um félagslegt leiguhúsnæði Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2023090345Vakta málsnúmer

Velferðarráð vísar til samráðshópsins nýjum reglum um félagslegt leiguhúsnæði Akureyrarbæjar til umsagnar.
Samráðshópurinn lýsir yfir ánægju sinni með reglurnar.

5.Samningur um þjónustu við fatlað fólk í Eyjafirði

Málsnúmer 2023090320Vakta málsnúmer

Velferðarráð vísar drögum að samningi um málefni fatlaðs fólks í Eyjafirði til samráðshópsins til umsagnar.
Samráðshópurinn lýsir yfir ánægju sinni með samninginn.

Fundi slitið - kl. 18:00.