Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

2. fundur 28. mars 2023 kl. 16:00 - 17:30 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Guðrún Karitas Garðarsdóttir formaður
  • Þórhallur Harðarson
  • Halla Birgisdóttir Ottesen
  • Sif Sigurðardóttir fulltrúi þroskahjálpar ne
  • Lilja Björg Jónsdóttir varafulltrúi grófarinnar
  • Elmar Logi Heiðarsson fulltrúi sjálfsbjargar
Starfsmenn
  • Karólína Gunnarsdóttir fundarritari
  • Guðrún Guðmundsdóttir
Fundargerð ritaði: Guðrún Guðmundsdóttir þjónustustjóri
Dagskrá
Lilja Björg Jónsdóttir varafulltrúi Grófarinnar mætti í forföllum Friðriks Einarssonar.

1.Kirkjutröppur - viðhald

Málsnúmer 2021011641Vakta málsnúmer

Unnið er að endurbótum á kirkjutröppunum og óskað eftir umsögn frá Samráðshópnum um hönnunina.

Sigurður Gunnarsson verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið og kynnti verkefnið.
Tillaga að hönnun var samþykkt og þótti það góð lausn að handrið yrði eingöngu í miðjunni en það yrði haft tvöfalt eins og fram kom í kynningunni.

2.Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

Málsnúmer 2019040271Vakta málsnúmer

Anna Einarsdóttir forstöðumaður skammtímavistunar sat fundinn undir þessum lið og kynnti starfsemi skammtímavistunar.

3.Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

Málsnúmer 2019040271Vakta málsnúmer

Umræður um bókun frá Þroskahjálp sem varðar stöðu biðlista eftir sértæku húsnæði og þar lýst yfir þungum áhyggjum vegna stefnu bæjarins að auka framboð á íbúðum í gegnum leigufélög í stað þess að byggja sérhæfða þjónustukjarna.
Umrædd bókun rædd og beðið er eftir kynningarfundi velferðarsviðs um stöðu mála. Krafa er um að hann verði haldinn fyrir sumarið.

4.Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

Málsnúmer 2019040271Vakta málsnúmer

Guðrún Guðmundsdóttir starfandi þjónustustjóri velferðarsviðs kynnti verklag samráðshópsins.
Samráðshópur fagnar því að komið sé skýrt verklag og mikilvægt að það sem fjallað er um á þessum fundum fari á rétta staði í bæjarkerfinu.

Fundi slitið - kl. 17:30.