Öldungaráð

26. fundur 15. febrúar 2023 kl. 13:00 - 14:30 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Hjálmar Pálsson formaður
  • Hildur Brynjarsdóttir
  • Brynjólfur Ingvarsson
  • Hallgrímur Gíslason fulltrúi ebak
  • Úlfhildur Rögnvaldsdóttir fulltrúi ebak
  • Þorgerður Jóna Þorgilsdóttir fulltrúi ebak
  • Eva Björg Guðmundsdóttir fulltrúi hsn
Starfsmenn
  • Bjarki Ármann Oddsson rekstrarstjóri ritaði fundargerð
  • Halla Birgisdóttir Ottesen forstöðumaður tómstundamála
Fundargerð ritaði: Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður skrifstofu fræðslu- og lýðheilsusviðs
Dagskrá

1.Lýðheilsuátak - tilraunaverkefni 2022-2023

Málsnúmer 2022101039Vakta málsnúmer

Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála og Héðinn Svarfdal Björnsson verkefnastjóri lýðheilsumála kynntu stöðuna á lýðheilsukortinu.
Öldungaráð þakkar Ellert og Héðni fyrir kynninguna og leggur til að tilraunaverkefnið verði framlengt og hvetur íbúa til að nýta sér kosti lýðheilsukortsins.

2.Virk efri ár

Málsnúmer 2022081092Vakta málsnúmer

Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála og Héðinn Svarfdal Björnsson verkefnastjóri lýðheilsumála kynntu stöðuna á verkefninu Virk efri ár.
Öldungaráð þakkar Ellert og Héðni fyrir kynninguna.

Öldungaráð fagnar metnaðarfullri dagskrá og hvetur íbúa Akureyrar sextíu ára og eldri til að kynna sér og nýta verkefnið.

3.Húsnæðisáætlun Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2019020182Vakta málsnúmer

Pétur Ingi Haraldsson skipulagsstjóri kynnti húsnæðisáætlun Akureyrarbæjar.
Öldungaráð þakkar Pétri fyrir kynninguna.

Öldungaráð minnir á mikilvægi þess að horfa til framtíðar í búsetumálum eldra fólks. Eldra fólki fjölgar hratt á næstu árum og nauðsynlegt að huga að fjölbreyttum úrræðum víða um bæinn. Öldungaráð hvetur til þess að tekið verði frá landsvæði sunnan við Hagahverfi fyrir klasa af byggingum þar sem gert er ráð fyrir öllum þjónustustigum fyrir eldra fólk.

4.Öldungaráð - önnur mál

Málsnúmer 2022100342Vakta málsnúmer

Umræða um önnur mál.

Fundi slitið - kl. 14:30.