Öldungaráð

10. fundur 07. maí 2018 kl. 09:00 - 10:15 Rósenborg - fundarherbergi samfélagssviðs 2. hæð (austur)
Nefndarmenn
  • Dagbjört Elín Pálsdóttir formaður
  • Sigurður Hermannsson varaformaður
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Halldór Gunnarsson
  • Anna G Thorarensen
Starfsmenn
  • Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri
Dagskrá
Guðmundur Baldvin Guðmundsson sat fundinn í forföllum Gunnars Gíslasonar.

1.Velferðarstefna 2014 - 2018

Málsnúmer 2015010191Vakta málsnúmer

Óskað hefur verið eftir umsögn Öldungaráðs á velferðarstefnu Akureyrarbæjar
Öldungaráð fagnar þessum drögum og telur stefnuna metnaðarfulla. Passa þarf upp á að eldri borgurum sé gert jafnhátt undir höfði og börnum og ungmennum þegar kemur að aðgengi og framboði að tómstundum og leggur á það áherslu að ráðið fái að koma að gerð aðgerðaráætlunar er snýr að málefnum eldri borgara.

2.Upplýsingastefna Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2015110167Vakta málsnúmer

Óskað er eftir umsögn Öldungaráðs á upplýsingastefnu Akureyrarbæjar.
Öldungaráð hefur ekki athugasemdir við stefnuna en vill koma þeirri athugasemd á framfæri að mikilvægt er að allar upplýsingar er varða málefni eldri borgara séu á einum stað á heimasíðu bæjarins.

Jafnframt telur Öldungaráð ástæðu til þess að Akureyrarbær haldi kynningarfund á heimasíðu bæjarins fyrir eldri borgara.

Fundi slitið - kl. 10:15.