Týsnes 12 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022042499

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 381. fundur - 04.05.2022

Samkvæmt skilmálum gildandi deiliskipulags fyrir C-áfanga Krossanesborga skal skipulagsráð fjalla um tillöguteikningar bygginga áður en þær eru fullhannaðar. Þá skal jafnframt leita umsagnar skipulagshönnuðar um fyrirhuguð byggingaráform.
Skipulagsráð samþykkir að vísa ákvörðun um mat á því hvernig tillagan fellur að landhæðum og landslagi og sé góð byggingarlist til byggingarfulltrúa í samvinnu við skipulagshönnuð deiliskipulagsins.