Álfaholt 5-7 - 2. umferð - allar umsóknir

Málsnúmer 2021120155

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 371. fundur - 08.12.2021

Auglýsingu 2. umferðar lauk 1. desember sl.

Þrjár umsóknir bárust; tvær frá einstaklingum og ein frá lögaðila.

Fyrir skipulagsráði liggur að draga á milli þeirra umsækjenda sem teljast gjaldgengir í samræmi við reglur Akureyrarbæjar um lóðaúthlutun.
Samkvæmt reglum Akureyrarbæjar um úthlutun lóða njóta einstaklingar forgangs við úthlutun einbýlis- og parhúsalóða. Þar af leiðandi var lögaðili undanskilinn frá útdrætti umræddrar lóðar.

Við útdrátt féll lóðin í hlut Davíðs Arnar Benediktssonar. Gert er ráð fyrir að lóðin verði byggingarhæf 15. október 2022. Deiliskipulagsskilmálar ásamt almennum byggingarskilmálum gilda.