Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

807. fundur 25. mars 2021 kl. 13:00 - 13:35 Fundarherbergi skipulagssviðs
Nefndarmenn
  • Leifur Þorsteinsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Lyngholt 7 - umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingum

Málsnúmer 2021023159Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 23. febrúar 2021 þar sem Tryggvi Tryggvason fyrir hönd Sigurðar Sigþórssonar sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við hús og bílgeymslu á lóð nr. 7 við Lyngholt. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Tryggva Tryggvason. Skipulagsráð samþykkti á fundi sínum 10. mars 2021 að ekki væri þörf á deiliskipulagsbreytingu.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

2.Hafnarstræti 34 - umsókn um byggingarleyfi fyrir 4 íbúða húsi

Málsnúmer 2021023171Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. febrúar 2021 þar sem Þorgeir Jónsson fyrir hönd Höfða Fasteignafélags ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir 4 íbúða timburhúsi á lóð nr. 34 við Hafnarstræti. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þorgeir Jónsson. Innkomar nýjar teikningar 9. mars 2021.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

3.Hafnarstræti 36 - umsókn um byggingarleyfi fyrir 4 íbúða húsi

Málsnúmer 2021023172Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. febrúar 2021 þar sem Þorgeir Jónsson fyrir hönd Höfða Fasteignafélags ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir 4 íbúða timburhúsi á lóð nr. 36 við Hafnarstræti. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þorgeir Jónsson. Innkomar nýjar teikningar 10. mars 2021.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

4.Dalsbraut, Lundarskóli, B-álma - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á innra skipulagi

Málsnúmer 2021023260Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. febrúar 2021 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Akureyrarbæjar sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi Lundarskóla við Dalsbraut. Fyrirhugað er að breyta innra skipulagi í B-álmu ásamt breytingum á gluggum og inngarði. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

5.Kjarnagata 61 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021023363Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 25. febrúar 2021 þar sem Steinmar Heiðar Rögnvaldsson fyrir hönd BB bygginga ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 61 við Kjarnagötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar Heiðar Rögnvaldsson. Innkomin leiðrétt gögn 23. mars 2021.

Jafnframt er óskað eftir byggingarleyfi fyrir jarðvegsskiptum.
Byggingarfulltrúi heimilar jarðvegsskipti fyrir húsinu en frestar erindinu að öðru leyti.

6.Halldóruhagi 2 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2021023437Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 26. febrúar 2021 þar sem Steinmar Heiðar Rögnvaldsson fyrir hönd BB bygginga ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi nr. 2 við Halldóruhaga á lóð nr. 61 við Kjarnagötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar Heiðar Rögnvaldsson. Innkomin leiðrétt gögn 23. mars 2021.

Jafnframt er óskað eftir byggingarleyfi fyrir jarðvegsskiptum.
Byggingarfulltrúi heimilar jarðvegsskipti fyrir húsinu en frestar erindinu að öðru leyti.

7.Jóninnuhagi 1 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2021023438Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 26. febrúar 2021 þar sem Steinmar Heiðar Rögnvaldsson fyrir hönd BB bygginga ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi nr. 1 við Jóninnuhaga á lóð nr. 61 við Kjarnagötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar Heiðar Rögnvaldsson. Innkomin leiðrétt gögn 23. mars 2021.

Jafnframt er óskað eftir byggingarleyfi fyrir jarðvegsskiptum.
Byggingarfulltrúi heimilar jarðvegsskipti fyrir húsinu en frestar erindinu að öðru leyti.

8.Margrétarhagi 11 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021030127Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. mars 2021 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Kistu Byggingarfélags ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á lóð nr. 11 við Margrétarhaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valþór Brynjarsson. Innkomnar nýjar teikningar 24. mars 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

9.Austurvegur 48 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021030825Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 11. mars 2021 þar sem Jóhannes Þórðarson fyrir hönd Isa Almosnino sækir um byggingarleyfi fyrir frístundahúsi á lóð nr. 48 við Austurveg. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Jóhannes Þórðarson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

10.Vanabyggð 4A-F - umsókn vegna útgrafinna rýma

Málsnúmer 2021031292Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 17. mars 2021 þar sem Haraldur Sigmar Árnason fyrir hönd Vanabyggðar 4, húsfélags sækir um leyfi til að bæta útgröfnum rýmum húsanna nr. 4A-F inn á aðalteikningar og breyta skráningartöflum. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald Sigmar Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:35.