Tillaga til þingsályktunar um orlofshúsnæði örorkulífeyrisþega, 187. mál

Málsnúmer 2020110583

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3707. fundur - 26.11.2020

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 18. nóvember 2020 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um orlofshúsnæði örorkulífeyrisþega, 187. mál 2020. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 2. desember nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/151/s/0188.html