Brasshópur Lýðveldisins - umsókn um styrk úr Menningarsjóði 2020

Málsnúmer 2020100257

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 308. fundur - 05.11.2020

Umsókn dagsett 8. október 2020 frá Vilhjálmi Inga Sigurðarsyni f.h. Brasshóps Lýðveldisins þar sem sótt er um styrk úr Menningarsjóði að upphæð kr. 630.000 vegna verkefnisins Jólatónlist á tímum heimsfaraldurs.

Almar Alfreðsson verkefnastjóri menningarmála sat fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir styrk að upphæð kr. 500.000 til verkefnisins.