Glerárholt - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2020060723

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 778. fundur - 13.08.2020

Erindi Ágústar Hafsteinssonar dagsett 18. júní 2020, fyrir hönd umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar, þar sem óskað er eftir leyfi til að fjölga íbúðum á efri hæð Glerárholts úr einni í tvær þannig að í húsinu verði þrjár íbúðir.

Skipulagsráð tók jákvætt í fjölgun íbúða á fundi sínum þann 12. ágúst sl.
Byggingarfulltrúi óskar eftir fullunnum aðaluppdráttum og tilheyrandi gögnum.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 785. fundur - 09.10.2020

Erindi dagsett 29. september 2020, þar sem Akureyrarbær, kt. 410169-6229, óskar eftir leyfi til að fjölga íbúðum á efri hæð Glerárholts úr einni í tvær þannig að í húsinu verði þrjár íbúðir. Skipulagsráð tók jákvætt í fjölgun íbúða á fundi sínum þann 12. ágúst sl. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þóri Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 788. fundur - 29.10.2020

Erindi dagsett 29. september 2020, þar sem Akureyrarbær óskar eftir leyfi til að fjölga íbúðum á efri hæð Glerárholts úr einni í tvær þannig að í húsinu verði þrjár íbúðir. Skipulagsráð tók jákvætt í fjölgun íbúða á fundi sínum þann 12. ágúst sl. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þóri Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 793. fundur - 03.12.2020

Erindi dagsett 21. nóvember 2020 þar sem Þórir Guðmundsson fyrir hönd Akureyrarbæjar sækir um breytingar frá áður samþykktum aðaluppdráttum af húsinu Glerárholti samkvæmt meðfylgjandi teikningum eftir Þóri Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 797. fundur - 14.01.2021

Erindi dagsett 21. nóvember 2020 þar sem Þórir Guðmundsson fyrir hönd Akureyrarbæjar sækir um breytingar frá áður samþykktum aðaluppdráttum af húsinu Glerárholti. Innkomnar nýjar teikningar 5. janúar 2021 eftir Þóri Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 798. fundur - 21.01.2021

Erindi dagsett 21. nóvember 2020 þar sem Þórir Guðmundsson fyrir hönd Akureyrarbæjar sækir um breytingar frá áður samþykktum aðaluppdráttum af húsinu Glerárholti. Innkomnar nýjar teikningar 19. janúar 2021 eftir Þóri Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.