Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

778. fundur 13. ágúst 2020 kl. 13:00 - 13:20 Fundarherbergi skipulagssviðs
Nefndarmenn
  • Leifur Þorsteinsson byggingarfulltrúi
  • Arnar Ólafsson
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Glerárgata 36 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2020010631Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 7. ágúst 2020 frá Guðmundi Oddi Víðissyni þar sem hann fyrir hönd Festi fasteigna ehf., kt. 581113-1100, sækir um leyfi til að klæða norðurgafl á lágbyggingu Glerárgötu 36. Samþykki meðeiganda liggur fyrir í tölvupósti.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Glerárholt - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2020060723Vakta málsnúmer

Erindi Ágústar Hafsteinssonar dagsett 18. júní 2020, fyrir hönd umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar, þar sem óskað er eftir leyfi til að fjölga íbúðum á efri hæð Glerárholts úr einni í tvær þannig að í húsinu verði þrjár íbúðir.

Skipulagsráð tók jákvætt í fjölgun íbúða á fundi sínum þann 12. ágúst sl.
Byggingarfulltrúi óskar eftir fullunnum aðaluppdráttum og tilheyrandi gögnum.

3.Halldóruhagi 1 - Kjarnagata 59 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2020061225Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 30. júní 2020 þar sem Haraldur Sigmar Árnason fyrir hönd Trétaks ehf., kt. 551087-1239, sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsinu Halldóruhaga 1 og bílakjallara á lóðinni nr. 59 við Kjarnagötu samkvæmt meðfylgjandi teikningum eftir Harald Sigmar Árnason. Innkomnar teikningar 4. ágúst 2020.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

4.Austursíða 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2020070505Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. júlí 2020 frá Baldri Svavarssyni þar sem hann fyrir hönd Norðurtorgs ehf., kt. 520220-2080, sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við húsið Austursíðu 2 ásamt breytingum á notkun, innréttingu og á lóð hússins. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Baldur Svavarsson.

Einnig er sótt um heimild til að rífa loftræstirými á þaki hússins og byggja nýjan stoðvegg á lóð við bílastæði.
Byggingarfulltrúi samþykkir niðurrif og byggingu stoðveggjar en frestar afgreiðslu erindisins að öðru leyti með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

5.Austurvegur 9 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2020080275Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12. ágúst 2020 frá Þresti Sigurðssyni þar sem hann fyrir hönd Wave Guesthouse Hrísey ehf., kt. 480615-2390, sækir um leyfi fyrir breytingu á notkun hússins Austurvegi 9, Hrísey, úr gistiskála í einbýlishús. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þröst Sigurðsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

6.Kambsmýri 14 - umsókn um girðingu

Málsnúmer 2020080295Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12. ágúst 2020 frá Karli Guðmundssyni þar sem hann sækir um leyfi fyrir girðingu við hluta lóðarmarka lóðarinnar nr. 14 við Kambsmýri.

Meðfylgjandi er samþykki umhverfis- og mannvirkjasviðs.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:20.