Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

797. fundur 14. janúar 2021 kl. 13:45 - 14:30 Fundarherbergi skipulagssviðs
Nefndarmenn
  • Leifur Þorsteinsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson fundarritari
Fundargerð ritaði: Leifur Þorsteinsson byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Glerárholt - umsókn um breytingar

Málsnúmer 2020060723Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 21. nóvember 2020 þar sem Þórir Guðmundsson fyrir hönd Akureyrarbæjar sækir um breytingar frá áður samþykktum aðaluppdráttum af húsinu Glerárholti. Innkomnar nýjar teikningar 5. janúar 2021 eftir Þóri Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

2.Þingvallastræti 12 - umsókn um byggingarleyfi fyrir svölum, kvisti og þaki

Málsnúmer 2020110439Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 13. nóvember 2020 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd L2 Fjárfestingafélags ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi nr. 12 við Þingvallastræti. Fyrirhugað er að breyta innra skipulagi og svölum, setja nýjan kvist og styrkja þak. Erindið fór í grenndarkynningu 18. desember 2020 og hefur borist samþykki allra er hana fengu.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

3.Baldursnes 6A - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss

Málsnúmer 2021010037Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 31. desember 2020 þar sem Baldur Ólafur Svavarsson fyrir hönd Svefns og heilsu ehf. sendir inn fyrirspurn um breytingar innanhúss í húsi nr. 6A við Baldursnes. Fyrirhugað er að stækka verslunarrými 0102 á kostnað lagerrrýmis og stækka milliloft.
Byggingarfulltrúi tekur jákvætt í erindið. Sækja þarf um byggingarleyfi fyrir breytingunni með viðeigandi teikningum og gögnum.

Fundi slitið - kl. 14:30.