Tryggvabraut 24 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2020030607

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 765. fundur - 24.04.2020

Erindi dagsett 23. mars 2020 þar sem Orri Árnason fyrir hönd TB24 hf., kt. 561219-2220, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum í húsi nr. 24 við Tryggvabraut. Fyrirhugað er að breyta efri hæð í orlofsíbúðir. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Orra Árnason.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 768. fundur - 14.05.2020

Erindi dagsett 23. mars 2020 þar em Orri Árnason fyrir hönd TB24 hf., kt. 561219-2220, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum í húsi nr. 24 við Tryggvabraut. Fyrirhugað er að breyta efri hæð í gistiíbúðir. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Orra Árnason. Innkomnar nýjar teikningar 12. maí 2020.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 771. fundur - 05.06.2020

Erindi dagsett 23. mars 2020 þar em Orri Árnason fyrir hönd TB24 hf., kt. 561219-2220, og Efniviðs ehf, kt. 680704-2950, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum í húsi nr. 24 við Tryggvabraut. Fyrirhugað er að breyta efri hæð í gistiíbúðir ásamt breytingum á 1. hæð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Orra Árnason. Innkomnar nýjar teikningar 12. og 20. maí 2020.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 794. fundur - 10.12.2020

Erindi dagsett 27. nóvember 2020 þar sem Orri Árnason fyrir hönd TB24 ehf. sækir um ýmsar breytingar frá áður samþykktum teikningum af Tryggvabraut 24. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Orra Árnason.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 795. fundur - 21.12.2020

Erindi dagsett 27. nóvember 2020 þar sem Orri Árnason fyrir hönd TB24 ehf. sækir um breytingar frá áður samþykktum teikningum af Tryggvabraut 24. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Orra Árnason. Innkomnar nýjar teikningar 14. desember 2020.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 816. fundur - 03.06.2021

Erindi dagsett 28. maí 2021 frá Orra Árnasyni þar sem hann fyrir hönd TB24 ehf. og Efniviðar ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum aðaluppdráttum af húsinu nr. 24 við Tryggvabraut. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Orra Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.