Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

816. fundur 03. júní 2021 kl. 13:00 - 14:20 Fundarherbergi skipulagssviðs
Nefndarmenn
  • Leifur Þorsteinsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson verkefnastjóri
  • Þórunn Vilmarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Þórunn Vilmarsdóttir
Dagskrá

1.Tryggvabraut 24 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2020030607Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 28. maí 2021 frá Orra Árnasyni þar sem hann fyrir hönd TB24 ehf. og Efniviðar ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum aðaluppdráttum af húsinu nr. 24 við Tryggvabraut. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Orra Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Matthíasarhagi 13 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021040446Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 9. apríl 2021 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Kistu Byggingarfélags ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á lóð nr. 13 við Matthíasarhaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valþór Brynjarsson.

Innkomið 31. maí 2021 samkomulag við lóðarhafa Steindórshaga 9-15.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Austurvegur 11 - umsókn um byggingarleyfi fyrir bílgeymslu og breytingum á íbúðarhúsi

Málsnúmer 2021050502Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 11. maí 2021 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Teits Bjögvinssonar sækir um byggingarleyfi fyrir bílgeymslu við hús nr. 11 við Austurveg og breytingum á innra skipulagi núverandi íbúðarhúss. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.

Innkomnar nýjar teikningar 26. maí 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

4.Höfðahlíð, Glerárskóli - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum

Málsnúmer 2021050966Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 20. maí 2021 þar sem Ágúst Hafsteinsson fyrir hönd Akureyrarbæjar sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi Glerárskóla við Höfðahlíð.

1. Á spennistöð Norðurorku í kjallara,

2. stálútihurð komið fyrir í hurðargati B-álmu,

3. glugga- og hurðaop í tengibyggingu milli A- og B-álmu verður stækkað til að koma fyrir útihurð,

4. opnu rými undir austurinngangi tengibyggingar verður lokað með gönguhurð,

5. stálhandrið við kjallaratröppur og tröppur upp á aðalhæð og stétt við austurhluta verður endurnýjað.

Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ágúst Hafsteinsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

5.Móasíða 1B - umsókn um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi

Málsnúmer 2021050993Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 20. maí 2021 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Unique Chillfresh Iceland ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 1B við Móasíðu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valþór Brynjarsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

6.Goðanes 12 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021051275Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 26. maí 2021 þar sem Björn Guðbrandsson fyrir hönd Festingar ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir húsi á lóð nr. 12 við Goðanes. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Björn Guðbrandsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

7.Kotárgerði 29 - umsókn um byggingarleyfi fyrir garðskýli

Málsnúmer 2021051306Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 26. maí 2021 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Margrétar Jónsdóttur sækir um byggingarleyfi fyrir svalalokun/sólstofu við hús nr. 29 við Kotárgerði. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Fundi slitið - kl. 14:20.