Frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni innflytjenda, nr. 116/2012, með síðari breytingum (móttaka flóttafólks og innflytjendaráð), 457. mál

Málsnúmer 2020010526

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3669. fundur - 30.01.2020

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 24. janúar 2020 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni innflytjenda, nr. 116/2012, með síðari breytingum (móttaka flóttafólks og innflytjendaráð), 457. mál 2020.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 14. febrúar nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/150/s/0644.html
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar í velferðarráði.