Umhverfis- og mannvirkjaráð

80. fundur 26. júní 2020 kl. 08:15 - 09:51 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Andri Teitsson formaður
  • Unnar Jónsson
  • Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
  • Sigurjón Jóhannesson
  • Berglind Bergvinsdóttir
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhaldsdeildar
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Dóra Sif Sigtryggsdóttir Forstöðumaður rekstrardeildar
Dagskrá

1.Hörgárbraut - Hlíðarbraut - endurgerð gatnamóta

Málsnúmer 2020060941Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 25. júní 2020 vegna væntanlegra framkvæmda.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að fara í framkvæmdir við gatnamótin á Hörgárbraut og Hlíðarbraut ásamt Vegagerðinni og mun framkvæmdin rúmast innan framkvæmdaáætlunar ársins 2020.

2.Sigurhæðir - breytingar vegna fyrirhugaðrar útleigu

Málsnúmer 2020060921Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 25. júní 2020 þar sem farið er yfir mögulega útleigu á húsinu sem íbúðarhúsi.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að málið verði unnið áfram miðað við framlagðar tillögur.

3.Skjaldarvík - framlenging leigusamnings

Málsnúmer 2018110055Vakta málsnúmer

Lagður fram húsaleigusamningur við Concept ehf. sem gildir til 31. desember 2026.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagðan leigusamning og felur sviðsstjóra að ganga frá málinu.

4.Hrísey - Hlein - fyrirspurn um hugsanleg kaup á eigninni

Málsnúmer 2020060812Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi dagsett 21. júní 2020 frá Theódóru Kristjánsdóttur og Teiti Björgvinssyni um möguleg kaup á eigninni.
Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar erindið. Ekki stendur til að selja húsið að svo stöddu en ef sú ákvörðun verður tekin þá verður húsið auglýst til sölu á almennum markaði.

5.Lundarskóli - loftgæði

Málsnúmer 2020020505Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 23. júní 2020 vegna endurbóta á tveimur álmum í Lundarskóla.

6.Hlíð - endurbætur á leiguíbúðum

Málsnúmer 2020060076Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 25. júní 2020 varðandi endurbætur á tveimur íbúðum í raðhúsunum við Hlíð.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að farið verði í endurbætur á íbúðunum og að framlag Akureyrarbæjar til framkvæmdanna að upphæð 12,2 milljónir króna verði tekið af liðnum Hlíð endurbætur á eldra húsnæði í framkvæmdaáætlun ársins 2020.

7.Glerá - göngu- og reiðbrú ásamt stíg

Málsnúmer 2019110416Vakta málsnúmer

Lögð fram stöðuskýrsla 1 dagsett 19. júní 2020.

Fundi slitið - kl. 09:51.