Afskriftir krafna 2018

Málsnúmer 2019010037

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3623. fundur - 17.01.2019

Lögð fram tillaga sviðsstjóra fjársýslusviðs dagsett 3. janúar 2019 um afskriftir krafna.

Kröfurnar eru frá árunum 2015 og fyrri árum. Jafnframt er um að ræða yngri kröfur hjá gjaldþrota aðilum og einstaklingum sem fengið hafa greiðsluaðlögun.

Samtals er um 544 kröfur að ræða að fjárhæð 10.801.487 krónur.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir tillögu sviðsstjóra fjársýslusviðs um afskriftir 544 krafna að fjárhæð 10.801.487 krónur.