Lýsing á bílaplönum í íbúahverfum Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2018110218

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 45. fundur - 23.11.2018

Farið yfir lýsingu á bílaplönum í íbúahverfum Akureyrarbæjar.

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 47. fundur - 14.12.2018

Í nokkrum íbúðahverfum er lýsing á bílaplönum við fjölbýlishús tengd við gatnalýsingarkerfi Akureyrarbæjar. Vegna jafnræðisreglu verður að gefa húsfélögum kost á að aftengja sig gatnalýsingarkerfinu og tengja sig inn á rafmagn húsanna eða að fá rukkun fyrir þessari notkun.

Lagt fram minnisblað dagsett 22. nóvember 2018.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að hefja gjaldtöku á lýsingu á bílaplönum samkvæmt minnisblaði.

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 64. fundur - 20.09.2019

Lagt fram bréf þess efnis að hefja gjaldtöku á bílaplönum í einkaeigu sem tengd eru gatnalýsingarkerfi Akureyrarbæjar.

Eiríkur Jónasson verkefnastjóri viðhalds gatna sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að senda út bréf þess efnis að tilkynna notendum um breytt fyrirkomulag.