Umhverfis- og mannvirkjaráð

45. fundur 23. nóvember 2018 kl. 08:15 - 11:15 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Andri Teitsson formaður
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Jóhann Jónsson
  • Berglind Bergvinsdóttir
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar
  • Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhaldsdeildar
  • Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda
  • Jónas Vigfússon forstöðumaður umhverfismiðstöðvar
  • Hildigunnur Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar
Dagskrá
Berglind Bergvinsdóttir M-lista mætti í forföllum Jóhönnu Norðfjörð.
Gunnar Gíslason D-lista boðaði forföll fyrir sig og varamann sinn.

1.Loftgæðamál og aðgerðaráætlun í Akureyrarbæ 2018

Málsnúmer 2018110215Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 21. nóvember 2018 vegna loftgæðamála í Akureyrarbæ og aðgerðaráætlana í loftgæðamálum.

Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála og Alfreð Schiöth frá mengunarvarnarsviði Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra sátu fundinn undir þessum lið.

2.Umhverfisátak Akureyrarbæjar 2018

Málsnúmer 2018040279Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 21. nóvember 2018 vegna hreinsunarátaks í bæjarlandinu.

Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála og Alfreð Schiöth frá mengunarvarnarsviði Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra sátu fundinn undir þessum lið.

3.Glerárdalur - lokun urðunarstaðar

Málsnúmer 2011070010Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 7. nóvember 2018 frá Umhverfisstofnun vegna kröfu um úrbætur á frágangi og vöktun á urðunarstað í Glerárdal.

Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála og Alfreð Schiöth frá mengunarvarnarsviði Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að hefja vöktun í samræmi við kröfur Umhverfisstofnunar.

4.Brýr yfir Eyjafjarðará

Málsnúmer 2017120110Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 21. nóvember 2018 um tillögur að breytingum á reið- og gönguleiðum vegna tilkomu nauðsynlegs lendingarbúnaðar ISAVIA við Akureyrarflugvöll og áætlaðan kostnað þeirra.

5.Umhverfismiðstöð - tækjakaup 2018

Málsnúmer 2018050156Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 19. nóvember 2018 vegna niðurstöðu útboðs á vinnuflokkabifreið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda, Kraftvéla ehf.

6.Umhverfismiðstöð - tækjakaup 2019

Málsnúmer 2018110214Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að tækjakaupum Umhverfismiðstöðvar ársins 2019.
Umhverfis- og mannvirkjaráð óskar eftir því að forstöðumaður Umhverfismiðstöðvar leggi fram arðsemisreikninga tækja á Umhverfismiðstöð.

Jóhann Jónsson S-lista vék af fundi kl. 9:55.

7.Lýsing á bílaplönum í íbúahverfum Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2018110218Vakta málsnúmer

Farið yfir lýsingu á bílaplönum í íbúahverfum Akureyrarbæjar.

8.Klettaborg 43 - íbúðakjarni

Málsnúmer 2017090011Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 21. nóvember 2018 vegna opnunar tilboða í jarðvinnu og lögn.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir taka tilboði lægstbjóðanda í verkið frá G. Hjálmarssyni hf.

9.Ófyrirséð viðhald - útboð 2018

Málsnúmer 2018110216Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar iðngreinaútboð vegna ófyrirséðs viðhalds hjá UMSA.

10.Efniskaup UMSA - útboð 2018

Málsnúmer 2018110217Vakta málsnúmer

Kynnt væntanlegt útboð á efniskaupum UMSA.

11.Fjárhagsáætlun umhverfis- og mannvirkjasviðs 2019

Málsnúmer 2018080973Vakta málsnúmer

Lagðir fram til kynningar viðaukar við fjárhagsáætlun ársins 2018 dagsettir 13. nóvember 2018. Einnig verklagsreglur um gerð viðauka hjá sveitarfélögum frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu dagsettar 7. nóvember 2018.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagða viðauka við framkvæmdayfirlit ársins 2018 og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarráði. Heildarniðurstaða er lækkun um 26,3 milljónir kr.

12.Stöðuskýrslur rekstrar UMSA 2018

Málsnúmer 2018050084Vakta málsnúmer

Lögð fram stöðuskýrsla rekstrar dagsett 21. nóvember 2018 fyrir 10 mánaða stöðu.

13.Verkfundargerðir 2018

Málsnúmer 2018010235Vakta málsnúmer

Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:

Glerárskóli leikskóli: 6.- 13. fundur verkefnisliðs dagsettir 13., 19. og 27. júní, 22. ágúst, 5. og 19. september, 17. október og 14. nóvember 2018.

Listasafn endurbætur: 22.- 33. verkfundur dagsettir 17. og 31. maí, 14. og 28. júní, 12., 19. og 26. júlí, 2., 10., 17. og 30. ágúst og 27. september 2018.

Naustahverfi 7. áfangi - Hagar: 8.- 19. verkfundur dagsettir 2., 16. og 30. maí, 13. júní, 4. og 18. júlí, 9. ágúst, 5. og 19. september, 3. og 24. október og 7. nóvember 2018.

Hlíðarskóli stækkun: 1.- 6. verkfundur dagsettir 25. september, 2. og 30. október, 6., 13. og 20. nóvember 2018.

Fundi slitið - kl. 11:15.