Umhverfis- og mannvirkjaráð

47. fundur 14. desember 2018 kl. 10:30 - 12:00 Hof
Nefndarmenn
  • Andri Teitsson formaður
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Jóhann Jónsson
  • Gunnar Gíslason
  • Berglind Bergvinsdóttir
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar
  • Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhaldsdeildar
  • Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda
  • Hildigunnur Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá
Berglind Bergvinsdóttir M-lista mætti í forföllum Jóhönnu Sólrúnar Norðfjörð.

1.Glerárskóli - bygging leikskóla, lóðar, tengibygginga og samkomusals

Málsnúmer 2018050021Vakta málsnúmer

Ingólfur Guðmundsson frá Kollgátu mætti á fundinn og kynnti stöðu hönnunar á væntanlegum framkvæmdum við Glerárskóla.

2.Ófyrirséð viðhald - útboð 2018

Málsnúmer 2018110216Vakta málsnúmer

Lögð fram niðurstaða útboðs á ófyrirséðu viðhaldi fyrir árin 2019-2020 dagsett 10. desember 2018.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboðum læstbjóðanda í hverjum flokki með eftirtöldum hætti og þeim fyrirvara að fjárhagsupplýsingar og aðrar upplýsingar um bjóðendur berist og uppfylli skilyrði útboðsgagna.



Blikksmíði

1. Blikk og tækniþjónustan

2. Benni Blikk ehf



Málun

1. Málningarmiðstöðin - Þröstur Guðjónsson

2. Litblær

3. Stefán Jónsson

4. Betra mál

5. MSM - Meistararnir sem Mála



Múrverk

1. Smári Sigurðsson ehf



Pípulögn

1. Lagnalind

2. Bjarni F. Jónasson ehf

3. Áveitan

4. Miðstöð

5. Bútur



Rafvirkjun

1. Íslenskir rafverktakar

2. Rafmax

3. Ljósgjafinn

4. Eltec ehf

5. Ák smíði



Húsasmíði

1. Jóhann Eysteinsson

2. Sporr 33/ Birkirós

3. Verkvit húsasmiðir

4. Trésmiðja Kristjáns Jónassonar

5. Ák smíði

6. B. Hreiðarsson



Stálsmíði

1. Vélsmiðja Steindórs

2. Útrás



Dúklögn, engin tilboð bárust.

3.Árholt - húsaleigusamningur við Akureyrarakademíuna

Málsnúmer 2015030019Vakta málsnúmer

Rætt um mögulega framlengingu á húsaleigusamningi við AkureyrarAkademíuna sem rennur út 31. desember 2018.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að framlengja leigusamninginn til tveggja ára með möguleika á framlengingu til eins árs.

4.Miðbraut 13 - kauptilboð

Málsnúmer 2018120088Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Claudia Werdecker dagsett 8. desember 2018 þar sem hún óskar eftir að kaupa Miðbraut 13 í Hrísey. Kauptilboðið hljóðar upp á kr. 8.500.000.
Umhverfis- og mannvirkjaráð getur ekki orðið við erindinu og felur sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs að ræða við hlutaðeigandi aðila.

5.Lýsing á bílaplönum í íbúahverfum Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2018110218Vakta málsnúmer

Í nokkrum íbúðahverfum er lýsing á bílaplönum við fjölbýlishús tengd við gatnalýsingarkerfi Akureyrarbæjar. Vegna jafnræðisreglu verður að gefa húsfélögum kost á að aftengja sig gatnalýsingarkerfinu og tengja sig inn á rafmagn húsanna eða að fá rukkun fyrir þessari notkun.

Lagt fram minnisblað dagsett 22. nóvember 2018.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að hefja gjaldtöku á lýsingu á bílaplönum samkvæmt minnisblaði.

6.Grímsey og Hrísey - gatnalýsing

Málsnúmer 2018120090Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 12. desember 2018.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga til samninga á grundvelli samningsdraganna við Rarik um að taka yfir gatnalýsingu í Grímsey og Hrísey.

7.Hlíðarfjallsvegur - samningur um athafnasvæði

Málsnúmer 2016010088Vakta málsnúmer

Rætt um framlengingu á samningi við Finn ehf. dagsettum 1. mars 2016 um afnot af athafnasvæði við Hlíðarfjallsveg alls 2,1 ha.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að nýta framlengingarákvæði samningsins til tveggja ára.

8.Grímsey - hundahald, undanþága yfir jólin

Málsnúmer 2018120098Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi dagsett í desember 2018 frá Henning Jóhannessyni og Guðrúnu Gísladóttur um tímabundna undanþágu frá banni við hundahald í Grímsey yfir jólahátíðina.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að verða við erindinu.

9.Umhverfis- og samgöngustefna Akureyrarbæjar - verkefni UMSA

Málsnúmer 2018080975Vakta málsnúmer

Rætt um endurskoðun á umhverfis- og samgöngustefnu Akureyrarbæjar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að hafa vinnufund um umhverfis- og samgöngustefnu Akureyrarbæjar í janúar næstkomandi.

Fundi slitið - kl. 12:00.