Frumvarp til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir, 438. mál

Málsnúmer 2017050018

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3555. fundur - 11.05.2017

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 3. maí 2017 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir, 438. mál 2017.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 12. maí nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/146/s/0571.html

Velferðarráð - 1253. fundur - 24.05.2017

Lögð fram til kynningar umsögn dagsett 17. maí 2017 vegna frumvarps til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir.

Laufey Þórðardóttir verkefnisstjóri búsetusviðs og Guðrún Sigurðardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs sátu fundinn undir þessum lið.