Huldugil - Réttarhvammur - umsókn um framkvæmdarleyfi

Málsnúmer 2016090035

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 241. fundur - 14.09.2016

Erindi dagsett 5. september 2016 þar sem Stefán H. Steindórsson f.h. Norðurorku, kt. 550978-0169, sækir um framkvæmdarleyfi fyrir hitaveitulögn frá Huldugili að Réttarhvammi. Meðfylgjandi er teikning.
Skipulagsnefnd hefur yfirfarið meðfylgjandi gögn vegna framkvæmdarinnar og samþykkir útgáfu framkvæmdarleyfisins á grundvelli 4. gr.- g "Samþykktar um skipulagsnefnd".

Eftirfarandi skilyrði setur skipulagsnefnd fyrir veitingu framkvæmdarleyfisins:

Framkvæmdin skal vera í samræmi við 24. gr. Lögreglusamþykktar fyrir Akureyrarbæ en þar eru ákvæði um farmflutninga og hreinsun ökutækja áður en farið er inn á malbikaðar götur.