Tengir - umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu ljósleiðara

Málsnúmer 2015040168

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 202. fundur - 29.04.2015

Erindi dagsett 22. apríl 2015 þar sem Gunnar Björn Þórhallsson f.h. Tengis hf., kt. 660702-2880, sækir um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu ljósleiðara sumarið 2015. Meðfylgjandi er teikning af fyrirhuguðum framkvæmdasvæðum.
Skipulagsnefnd hefur yfirfarið meðfylgjandi framkvæmdaáætlun og telur hana uppfylla ákvæði reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi. Um er að ræða heildarleyfi fyrir lagningu ljósleiðara á árinu 2015 sbr. meðfylgjandi yfirlitsuppdrátt.

Eftirfarandi skilyrði setur skipulagsnefnd fyrir veitingu framkvæmdaleyfisins:

- Útgáfa framkvæmdaleyfis er háð yfirferð á frágangi fyrri framkvæmda.

- Skrifleg framkvæmdaleyfi fyrir nánar skilgreinda verkþætti verða ekki gefin út fyrr en öll fylgigögn og sérteikningar hafa borist og þær yfirfarnar af framkvæmdadeild Akureyrar og afgreidd á afgreiðslufundi skipulagsstjóra.

- Framkvæmdir skulu gerðar í samræmi við verklagsreglur Akureyrarbæjar um yfirborðsfrágang í bæjarlandinu. Nákvæm lega lagna í bæjarlandinu skal ákveðin í samráði við framkvæmdadeild og veitustofnanir bæjarins.

- Framkvæmdaleyfið gildir í eitt ár frá útgáfu leyfis og gildir einungis fyrir svæði utan íbúðarhúsalóða og annarra úthlutaðra lóða. Leyfishafi skal afla samþykkis lóðarhafa vegna lagna innan íbúðarhúsalóða og leggja fram áður en framkvæmdaleyfi verður gefið út.

- Framkvæmdir skulu vera í samræmi við 24. gr. Lögreglusamþykktar fyrir Akureyrarbæ en þar eru ákvæði um farmflutninga og hreinsun ökutækja áður en farið er inn á malbikaðar götur.

Skipulagsnefnd samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 4. gr.-g "Samþykktar um skipulagsnefnd".

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 538. fundur - 30.04.2015

Erindi dagsett 15. apríl 2015 frá Gunnari Birni Þórhallssyni þar sem hann f.h. Tengis hf., kt. 660702-2880, óskar eftir útgáfu framkvæmdaleyfis sbr. bókun skipulagsnefndar 29. apríl 2015. Um er að ræða framkvæmdir við ljósleiðaralögn frá Eyjafjarðarbraut að Kjarnalundi og Götu Sólarinnar samkvæmt meðfylgjandi teikningu. Fyrir liggur staðfesting á samráði við framkvæmdadeild og Norðurorku.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir að gefa út framkvæmdaleyfi fyrir ofantalin verk. Framkvæmdir skulu gerðar í samræmi við verklagsreglur Akureyrarbæjar um yfirborðsfrágang í bæjarlandinu. Framkvæmdir skulu vera í samræmi við 24. gr. Lögreglusamþykktar fyrir Akureyrarbæ en þar eru ákvæði um farmflutninga og hreinsun ökutækja áður en farið er inn á malbikaðar götur. Framkvæmdaleyfið gildir í eitt ár frá útgáfu leyfis og gildir einungis fyrir svæði utan íbúðarhúsalóða og annarra úthlutaðra lóða.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 547. fundur - 02.07.2015

Erindi dagsett 25. apríl 2015, móttekið 25. júní 2015, frá Gunnari Birni Þórhallssyni þar sem hann f.h. Tengis hf., kt. 660702-2880, óskar eftir útgáfu framkvæmdaleyfis sbr. bókun skipulagsnefndar 29. apríl 2015. Um er að ræða framkvæmdir við ljósleiðaralögn á eftirtöldum svæðum sbr. meðfylgjandi uppdrætti:

1. Miðholt, Stafholt, Langholt, Þverholt, Einholt, Hraunholt og Hörgárbraut.

2. Miðsíða að austan frá Múlasíðu að Þverusíðu.

3. Borgarbraut frá Hlíðarbraut að Bugðusíðu.

4. Vestan Hörgárbrautar frá Hlíðarbraut að Austursíðu 2.

5. Frá Sómatúni að Hömrum.
Skipulagsstjóri samþykkir að gefa út framkvæmdaleyfi fyrir ofantalin verk að undanskildum lið 5. frá Sómatúni að Hömrum. Í því tilviki þarf að sækja um framkvæmdaleyfi til skipulagsnefndar.

Framkvæmdir skulu gerðar í samræmi við verklagsreglur Akureyrarbæjar um yfirborðsfrágang í bæjarlandinu. Framkvæmdir skulu vera í samræmi við 24. gr. Lögreglusamþykktar fyrir Akureyrarbæ en þar eru ákvæði um farmflutninga og hreinsun ökutækja áður en farið er inn á malbikaðar götur. Framkvæmdaleyfið gildir í eitt ár frá útgáfu leyfis og gildir einungis fyrir svæði utan íbúðarhúsalóða og annarra úthlutaðra lóða. Umsækjandi beri kostnað vegna færslu lagna á óskipulögðum svæðum ef færa þarf lagnirnar vegna nýskipulags.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 549. fundur - 16.07.2015

Erindi dagsett 14. júlí 2015 þar sem Gunnar Björn Þórhallsson f.h. Tengis hf., kt. 660702-2880, óskar eftir útgáfu framkvæmdaleyfis sbr. bókun skipulagsnefndar 29. apríl 2015. Um er að ræða framkvæmdir við ljósleiðaralögn á eftirtöldum svæðum sbr. meðfylgjandi uppdrætti:

1. Ásvegur.

2. Hamarstígur-Mýrarvegur.
Skipulagsstjóri samþykkir að gefa út framkvæmdaleyfi fyrir ofantalin verk. Framkvæmdir skulu gerðar í samræmi við verklagsreglur Akureyrarbæjar um yfirborðsfrágang í bæjarlandinu. Framkvæmdir skulu vera í samræmi við 24. gr. Lögreglusamþykktar fyrir Akureyrarbæ en þar eru ákvæði um farmflutninga og hreinsun ökutækja áður en farið er inn á malbikaðar götur. Framkvæmdaleyfið gildir í eitt ár frá útgáfu leyfis og gildir einungis fyrir svæði utan íbúðarhúsalóða og annarra úthlutaðra lóða. Umsækjandi beri kostnað vegna færslu lagna á óskipulögðum svæðum ef færa þarf lagnirnar vegna nýskipulags.

Skipulagsnefnd - 208. fundur - 12.08.2015

Erindi dagsett 17. júlí 2015 þar sem Gunnar Björn Þórhallsson f.h. Tengis hf., kt. 660702-2880, sækir um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu ljósleiðara frá fjarskiptahúsinu ofan við Sómatún að tjaldsvæðinu að Hömrum. Meðfylgjandi eru uppdrættir af fyrirhugaðri lagnaleið.
Skipulagsnefnd hefur yfirfarið meðfylgjandi framkvæmdagögn og telur þau uppfylla ákvæði reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi. Um er að ræða leyfi fyrir lagningu ljósleiðara frá Sómatúni að Hömrum sbr. meðfylgjandi yfirlitsuppdrátt.

Eftirfarandi skilyrði setur skipulagsnefnd fyrir veitingu framkvæmdaleyfisins:

- Útgáfa framkvæmdaleyfis er háð yfirferð á frágangi fyrri framkvæmda.

- Skrifleg framkvæmdaleyfi fyrir nánar skilgreinda verkþætti verða ekki gefin út fyrr en öll fylgigögn og sérteikningar hafa borist og þær yfirfarnar af framkvæmdadeild Akureyrar og afgreidd á afgreiðslufundi skipulagsstjóra.

- Framkvæmdir skulu gerðar í samræmi við verklagsreglur Akureyrarbæjar um yfirborðsfrágang í bæjarlandinu. Nákvæm lega lagna í bæjarlandinu skal ákveðin í samráði við framkvæmdadeild og veitustofnanir bæjarins.

- Framkvæmdaleyfið gildir í eitt ár frá útgáfu leyfis og gildir einungis fyrir svæði utan íbúðarhúsalóða og annarra úthlutaðra lóða. Leyfishafi skal afla samþykkis lóðarhafa vegna lagna innan íbúðarhúsalóða og leggja fram áður en framkvæmdaleyfi verður gefið út.

- Framkvæmdir skulu vera í samræmi við 24. gr. Lögreglusamþykktar fyrir Akureyrarbæ en þar eru ákvæði um farmflutninga og hreinsun ökutækja áður en farið er inn á malbikaðar götur.

Skipulagsnefnd samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 4. gr.-g 'Samþykktar um skipulagsnefnd'.