Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

549. fundur 16. júlí 2015 kl. 13:00 - 14:40 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Ólafur Jakobsson
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Byggðavegur 91 - beytingar

Málsnúmer BN070279Vakta málsnúmer

Innkomnar teikningar 10. júlí 2015 eftir Berg Steingrímsson þar sem hann f.h. Stórverks ehf., kt. 530400-3790, óskar eftir breytingum á Byggðavegi 91.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

2.Gata sólarinnar 6 - umsókn um byggingarleyfi fyrir frístundahúsi

Málsnúmer 2015060005Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. júlí 2015 þar sem Brynjar Einarsson f.h. Úrbótamanna ehf., kt. 410685-0598, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Brynjar Einarsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

3.Tengir - framkvæmdaleyfi fyrir ljósleiðara 2015

Málsnúmer 2015040168Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. júlí 2015 þar sem Gunnar Björn Þórhallsson f.h. Tengis hf., kt. 660702-2880, óskar eftir útgáfu framkvæmdaleyfis sbr. bókun skipulagsnefndar 29. apríl 2015. Um er að ræða framkvæmdir við ljósleiðaralögn á eftirtöldum svæðum sbr. meðfylgjandi uppdrætti:

1. Ásvegur.

2. Hamarstígur-Mýrarvegur.
Skipulagsstjóri samþykkir að gefa út framkvæmdaleyfi fyrir ofantalin verk. Framkvæmdir skulu gerðar í samræmi við verklagsreglur Akureyrarbæjar um yfirborðsfrágang í bæjarlandinu. Framkvæmdir skulu vera í samræmi við 24. gr. Lögreglusamþykktar fyrir Akureyrarbæ en þar eru ákvæði um farmflutninga og hreinsun ökutækja áður en farið er inn á malbikaðar götur. Framkvæmdaleyfið gildir í eitt ár frá útgáfu leyfis og gildir einungis fyrir svæði utan íbúðarhúsalóða og annarra úthlutaðra lóða. Umsækjandi beri kostnað vegna færslu lagna á óskipulögðum svæðum ef færa þarf lagnirnar vegna nýskipulags.

4.Krókeyrarnöf 21 - byggingarleyfi

Málsnúmer BN070473Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 9. júlí 2015 þar sem Ágúst Hafsteinsson f.h. Bókhalds og ráðgjafar Auditor ehf., kt. 440302-3270, sækir um breytingar utanhúss á húsi nr. 21 við Krókeyrarnöf. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ágúst Hafsteinsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

5.Kringlumýri 11 - umsókn um breytingar utanhúss

Málsnúmer 2015070067Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. júlí 2015 þar sem Snorri Magnússon sækir um breytingar utanhúss á Kringlumýri 11. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

6.Tjarnartún 21 - veggur á lóðarmörkum

Málsnúmer 2015070066Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. júlí 2015 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Björns Ómars Sigurðarsonar sækir um að setja upp vegg á lóðarmörkum norðan við hús nr. 21 við Tjarnartún. Meðfylgjandi er teikning eftir Loga Má Einarsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

7.Einholt 10 - byggingarleyfi fyrir viðgerð á þaki

Málsnúmer 2015070068Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. júlí 2015 þar sem Anton Örn Brynjarsson f.h. Einholts 10, húsfélags, kt. 621004-3280, sækir um endurgerð á þaki á Einholti 10. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Anton Örn Brynjarsson.
Skipulagsstjóri frestar erindinu og óskar eftir greinargerð sbr. 4.5.3. gr. í byggingarreglugerð um loftun og einangrun í þaki. Einnig er óskað eftir útreikningi á kólnunartölum þaks.

8.Bjarmastígur 2 - sameining fastanúmera

Málsnúmer 2015070027Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 6. júlí 2015 þar sem Valgerður Melstað sækir um sameiningu fasteignanúmera í húsi nr. 2 við Bjarmastíg. Innkomnar teikningar 14. júlí 2015.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

9.Óseyri 1a - breytingar innan- og utanhúss

Málsnúmer 2015010022Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. janúar 2015 þar sem Haraldur Árnason f.h. Laxagötu ehf., kt. 481214-0680, sækir um breytingar innan- og utanhúss á Óseyri 1a. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald Árnason.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

10.Furuvellir 17 - umsókn um breytingar utanhúss

Málsnúmer 2015070096Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 16. júlí 2015 þar sem Aðalsteinn Snorrason f.h. Reita fasteignafélags hf., kt. 711208-0700, sækir um breytingar utanhúss við Furuvelli 17. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Aðalstein Snorrason.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 14:40.