Sérstakar húsaleigubætur - ábending varðandi leigjendur Brynju Hússjóðs

Málsnúmer 2014100353

Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð - 1196. fundur - 05.11.2014

Lagt fram til kynningar bréf frá Guðrúnu Pálmadóttur réttindagæslumanni fatlaðra dagsett 21. október 2014 varðandi sérstakar húsaleigubætur til leigjenda Brynju Hússjóðs.

Málinu frestað til næsta fundar.

Félagsmálaráð - 1198. fundur - 03.12.2014

Lagt fram til kynningar bréf dagsett 21. október 2014 frá réttindagæslumanni fatlaðra Guðrúnu Pálmadóttur varðandi sérstakar húsaleigubætur til leigjenda Brynju Hússjóðs. Málið var áður á dagskrá 5. nóvember sl.

Félagsmálaráð felur Dan Jens Brynjarssyni fjármálastjóra, í samvinnu við framkvæmdastjóra Fasteigna Akureyrarbæjar, fjölskyldu- og búsetudeildar, að endurskoða reglur um leiguhúsnæði bæjarins og sérstakar húsaleigubætur.