Njarðarnes 3-7 - umsókn um stækkun byggingarreits

Málsnúmer 2014100034

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 189. fundur - 15.10.2014

Erindi dagsett 3. október 2014 þar sem Alexander Benediktsson f.h. Barkar ehf., kt. 630186-1619, sækir um stækkun byggingarreits um 15m til norðurs við Njarðarnes 3-7. Meðfylgjandi er teikning.

Skipulagsnefnd heimilar umsækjanda að leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi. Breytingin verði unnin í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd - 191. fundur - 12.11.2014

Erindi dagsett 3. október 2014 þar sem Alexander Benediktsson f.h. Barkar ehf., kt. 630186-1619, sækir um stækkun byggingarreits við Njarðarnes 3-7.
Skipulagsnefnd heimilaði umsækjanda þann 15. október 2014 að leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi. Tillagan er unnin af Ágústi Hafsteinssyni frá Formi ehf. og er dagsett 12. nóvember 2014.

Þar sem um óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi er að ræða leggur skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að tillagan verði grenndarkynnt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn - 3363. fundur - 18.11.2014

4. liður í fundargerð skipulagsnefndar dagsett 12. nóvember 2014:
Erindi dagsett 3. október 2014 þar sem Alexander Benediktsson f.h. Barkar ehf, kt. 630186-1619, sækir um stækkun byggingarreits við Njarðarnes 3-7.
Skipulagsnefnd heimilaði umsækjanda þann 15. október 2014 að leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi. Tillagan er unnin af Ágústi Hafsteinssyni frá Formi ehf og er dagsett 12. nóvember 2014.
Þar sem um óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi er að ræða leggur skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að tillagan verði grenndarkynnt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.

Skipulagsnefnd - 194. fundur - 14.01.2015

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi vegna stækkunar byggingarreits á lóðinni Njarðarnes 3-7 var grenndarkynnt frá 19. nóvember til 17. desember 2014.

Engin athugasemd barst.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna á grundvelli 4. gr.-e "Samþykktar um skipulagsnefnd" og felur skipulagsstjóra að annast gildistöku hennar.