Jaðarstún 9-11 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014080132

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 507. fundur - 05.09.2014

Erindi dagsett 24. ágúst 2014 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson f.h. BB bygginga ehf., kt. 550501-2280, sækir um byggingarleyfi fyrir parhús nr. 9-11 við Jaðarstún. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar H. Rögnvaldsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 527. fundur - 12.02.2015

Erindi dagsett 11. febrúar 2015 þar sem Sigurður Björgvin Björnsson f.h. BB bygginga ehf., kt. 550501-2280, sækir um framkvæmdafrest á lóðinni nr. 9-11 við Jaðarstún.
Skipulagsstjóri samþykkir frest til 1. júlí 2015.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 570. fundur - 14.01.2016

Erindi dagsett 6. janúar 2015 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson f.h. BB bygginga ehf., kt. 550501-2280, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir Jaðarstún 9-11. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar H. Rögnvaldsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 575. fundur - 26.02.2016

Erindi dagsett 6. janúar 2015 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson f.h. BB bygginga ehf., kt. 550501-2280, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir Jaðarstún 9-11. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar H. Rögnvaldsson. Innkomnar teikningar 23. febrúar 2016.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 606. fundur - 27.10.2016

Erindi dagsett 18. október 2016 þar sem Sigurður Björgvin Björnsson fyrir hönd BB bygginga ehf, kt. 550501-2280, sækir um leyfi fyrir kerrustæðum fyrir hvora íbúð á lóðinni nr. 9-11 við Jaðarstún samkvæmt meðfylgjandi afstöðumynd.
Skipulagsstjóri frestar erindinu þar sem vinnureglur um bílastæði og úrtök á kantsteini eru í vinnslu.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 636. fundur - 22.06.2017

Erindi dagsett 18. október 2016 þar sem Sigurður Björgvin Björnsson fyrir hönd BB bygginga ehf sækir um leyfi fyrir kerrustæðum fyrir hvora íbúð á lóðinni nr. 9-11 við Jaðarstún samkvæmt meðfylgjandi afstöðumynd. Umsókn endurnýjuð með tölvupósti 12. júní 2017.
Byggingarfulltrúi getur fallist á að útbúin séu kerrustæði en hafnar úrtöku í kantstein með vísun í vinnureglur um bílastæði.